Year: 2009
Type: article
Abstract: Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður hér á landi hafa að baki öflugt og gott háskólanám sem undirbýr þessar starfsstéttir að takast á við fjölbreytt verkefni heilbrigðisþjónustunnar. Vaxandi þörf er á því í samfélaginu að skilgreina viðfangsefni heilbrigðisþjónustunnar sem ekki er sinnt sem skyldi. Eitt af þeim viðfangsefnum er kynheilbrigðisþjónusta fyrir ungt fólk og innan hennar ráðgjöf um getnaðarvarnir. Þessi þjónusta er háð því að heimila fyrrgreindum starfsstéttum að ávísa hormónagetnaðarvörnum. Aðgengi að sérhæfðri ráðgjöf um getnaðarvarnir fyrir ungt fólk hefur verið takmarkað hér á landi og mikil þörf á að auka gæði þjónustunnar.
Author: Sóley S. Bender
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W110157439
