Work

Þróun holdafars og sykursýki í 40 ár á Íslandi

Year: 2009
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: ÁgripTilgangur: Offita og sykursýki eru vaxandi vandamál og mikilvægt að nýjar upplýsingar um þessa þætti liggi fyrir.Hér er greint frá þróun líkamsþyngdarstuðuls og sykursýki af tegund 2 á Íslandi.Efniviður og aðferðir: Meðallíkamsþyngdarstuðull (kg/m2), algengi sykursýki af tegund 2 og algengi offitu hjá 45-64 ára voru könnuð frá 1967 til 2007.Algengi sykursýki byggist á fjórum rannsóknum Hjartaverndar: Áfanga I-V í Hóprannsókn 1967-1991, Afkomendarannsókn 1997-2001, Rannsókn á ungu fólki 2001-2003 og Áhættuþáttakönnun frá 2006-2007, samtals 17.757 manns.Könnun á líkamsþyngdarstuðli byggist að auki á gögnum úr Monica-rannsókninni á Íslandi frá 1983, 1988 og 1993, heildarfjöldi 20.519.Sömu þættir voru einnig kannaðir fyrir 25-84 ára frá 2004 til 2007.Þá var notast við Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar, 2410 manns og Öldrunarrannsókn Hjartaverndar, 3027 manns.Niðurstöður: Meðallíkamsþyngdarstuðull jókst um tvær einingar hjá báðum kynjum (45-64 ára) og algengi sykursýki af tegund 2 tvöfaldaðist hjá körlum og jókst um 50% hjá konunum á árunum 1967-2007.Algengi sykursýki af tegund 2 hjá 25-84 ára, á árunum 2004-2007 var 6% hjá körlum og 3% hjá konum.Algengi offitu var 23% hjá körlum en 21% hjá konum.Ályktanir: Meðallíkamsþyngdarstuðull hefur aukist undanfarna áratugi, einkum eftir 1980.Sykursýki eykst í hlutfalli við vaxandi ofþyngd.inngangur Flestir áhættuþættir hjarta-og æðasjúkdóma hafa færst til betri vegar undanfarna áratugi 1-3 og hefur nýgengi kransæðasjúkdóma lækkað hjá Íslendingum.4, 5 Á sama tíma eykst offita og sykursýki af tegund 2 hér á landi 6 eins og annars staðar, bæði á Vesturlöndum 7, 8 en einnig í þróunarlöndum.9 Hugsanlegt er að þessi þróun geti verulega dregið úr þeim góða árangri sem baráttan við hjarta-og æðasjúkdóma hefur skilað.10, 11 Í upphafi árs 2006 hóf Hjartavernd nýja rannsókn á áhættuþáttum hjarta-og æðasjúkdóma hjá Íslendingum.Þýðið nær til karla og kvenna, búsettra á höfuðborgarsvæðinu í árslok 2005 og fæddum á árunum 1936-1975.Þessi rannsókn nefnist Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar (Refine Reykjavik Study) og eru hér birtar fyrstu niðurstöður úr þeirri rannsókn og þær settar í samhengi við fyrri rannsóknir Hjartaverndar.Mikil umræða hefur átt sér stað í íslensku samfélagi um offitu og vandamál tengd henni og því mikil þörf á frekari gögnum fengnum úr almennu þýði.12 Hjartavernd birtir hér lýsandi grein á ástandi holdafars og sykursýki á síðustu árum á Íslandi.Með því er leitast við að gera þessar upplýsingar aðgengilegar vísindamönnum og almenningi til nota í umræðum og við vísindarannsóknir.Markmið rannsóknarinnar er því í fyrsta lagi að sýna þróun líkamsþyngdarstuðuls, þróun í algengi offitu og þróun algengi sykursýki af tegund tvö hjá miðaldra Íslendingum, sé horft til undanfarinna 40 ára.Þróun líkamsþyngdar í Svíþjóð og á Íslandi er einnig sýnd til samanburðar.Í öðru lagi að kanna ástand þessara sömu þátta hjá fólki á aldrinum 25-84 ára á árunum 2004-2007.Efniviður og aðferðir Könnuð var annars vegar þróun í líkamsþyngd, þróun á hreyfingu í frítíma og þróun á algengi sykursýki af tegund 2 hjá 45-64 ára á 40 ára tímabili, 1967-2007.Hins vegar var meðallíkamsþyngdarstuðull, algengi offitu og algengi sykursýki af tegund 2, hjá fólki á aldrinum 25-84 ára árið 2004 til 2007 kannað.Gögn úr fjölmörgum þýðum Hjartaverndar voru notuð í rannsókninni.Við könnun á þróun á algengi sykursýki af tegund 2 árunum 1967-2007 og algengi hreyfingar í frítíma var notast við sama þýði og í nýlegri grein Jóhannesar Bergsveinssonar í Læknablaðinu um algengi sykursýki 1967-2002, 6 að viðbættum niðurstöðum úr Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar frá 2006-2007.Þýðinu er lýst ítarlega í grein Jóhannesar en í stuttu máli byggist það á gögnum þriggja rannsókna Hjartaverndar: Áfanga I-V í Hóprannsókn Hjartaverndar
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W131246411
FWCI: 0.198
Cites: 26
Cited by: 1
Related to: 10