Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Fyrri rannsóknir benda til þess að ólíkir þættir hugrænnar starfsemi verði fyrir neikvæðum áhrifum þungunar. Markmið þessarar rannsóknar var að komast að því hvort að hugræn geta, þá sérstaklega minni og athygli, fari versnandi eftir þungun og hvort þetta sé mismunandi eftir aldri og fyrri þungunum. Þátttakendur voru alls 40 konur, 20 óléttar og 20 ekki óléttar. Tilgátur rannsóknarinnar voru að óléttar konur myndu standa sig verr heldur en þær sem ekki voru óléttar en að þessi munur væri breytilegur eftir aldri og fyrri þungunum. Einnig að enginn munur væri á frammistöðu hópanna á sérstökum hugrænum verkefnum eins og minni fyrir meðgöngutengd orð. Þrjú hugræn próf voru notuð í rannsókninni. Tveir orðalistar sem innihéldu 15 orð hvor og voru þátttakendur beðnir um að muna eins mörg orð og þeir gátu. Tvö Stroop próf, auðvelt og erfitt, þar sem þátttakendur áttu að beina athyglinni að lit orðanna og hunsa orðið sjálft. Einnig stuttsaga þar sem þátttakendur lásu og svöruðu 6 spurningum úr stuttsögunni. Helstu niðurstöður bentu til hugrænnar skerðingu á meðgöngu, meiri stuðningur fannst við minnisskerðingu. Einnig kom í ljós munur á aldurshópunum tveimur, konur 25 ára og eldri stóðu sig betur heldur en konur yngri en 25 ára á auðvelda Stroop verkefninu og í stuttsögu-verkefninu.
Source: Skemman
Author: Margrét Anna Ágústsdóttir
Language: English
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1490365600
