Work

Upplýsinga- og samskiptatækni í háskólanámi og kennslu

Year: 2004
Type: article
Abstract: Í greininni er fjallað um könnun sem gerð var á notkun upplýsinga- og samskiptatækni (UST)í þremur háskólum á Íslandi í upphafi árs 2003. Könnunin er hluti af rannsóknarverkefninu NámUST. Verkefnið samanstendur af rannsóknum á notkun upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu frá leikskólastigi til háskólastigs. Niðurstöður könnunar gefa vísbendingar um að upplýsinga- og samskiptatækni hafi þegar könnunin var gerð fyrst og fremst verið nýtt til að styðja við hefðbundnar aðferðir í námi og kennslu. Ritvinnsla var útbreiddasta forritið meðal nemenda en töflureiknir og glærugerðarforrit komu þar á eftir. Önnur forrit voru takmarkað notuð. Glærugerðarforrit var einkennandi fyrir forritanotkun kennara þegar þeir undirbjuggu kennslu og glærusýningar voru einkennandi í kennslunni sjálfri. Nemendur virtust almennt nýta sér Netið til upplýsingaleitar og efnisöflunar í námi en niðurstöður benda til að kennarar hafi síður nýtt slíkt efni með beinum hætti í kennslunni. Vefkennslukerfi (t.d. WebCT eða innranet skóla) var almennt mikið notuð í námi og kennslu þó mest til miðlunar námsefnis og var notkun Netsins tíðust í þessum tilgangi auk tölvusamskipta í tölvupósti. Niðurstöður könnunar á aðferðum við námsmat benda til að kennarar hafi lítið verið farnir að nýta sé ný tækifæri sem skapast hafa á sviði námsmats með þróun upplýsinga- og samskiptatækni.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1522431737
FWCI: 1.334
Cites: 6
Cited by: 5
Related to: 10