Viðhorf neytenda til styrkja til rokkhljómsveita
Year: 2012
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: Mat neytenda á styrkjum er m.a. talið byggja á hvort styrkveitandinn sé einkaaðili eða opinber aðili. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf neytenda til styrkja til íslenskra rokkhljómsveita. Annars vegar var markmiðið að kanna hvort viðhorfið sé almennt ólíkt eftir því hvort styrkveitandinn er einkarekið fyrirtæki, ráðuneyti eða opinber stofnun og hins vegar var ætlunin að kanna hvaða áhrif styrkveiting geti haft á rokkhljómsveitir að mati neytenda. Þátttakendur í rannsókninni voru valdir með hentugleikaúrtaki þeirra háskólanemenda sem uppfylltu það að teljast hluti af neytendum, en neytendur voru skilgreindir sem þeir einstaklingar sem keypt höfðu hljómplötu og/eða sótt tónleika með íslenskri rokkhljómsveit 12 mánuði áður en spurningalistinn var lagður fyrir. Niðurstöðurnar sýna að neytendur eru almennt jákvæðara í garð frá einkareknum fyrirtækjum heldur en opinberri stofnun eða ráðuneyti. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að neytendur telja áhrif slíkra styrkveitinga geta haft mikilvæg áhrif á rokkhljómsveitir, sér í lagi varðandi velgengni þeirra.
Source: Skemman
Authors: Víkingur Másson, Auður Hermannsdóttir
Language: Norwegian Nynorsk
Topic: Music History and Culture
Subfield: Music
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
SDG: Zero hunger
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1529317261
