Work

Markmið kennaranáms : starfshæfni og fagmennska

Year: 2008
Type: article
Abstract: Í greininni er fjallað um notkun hæfnihugtaksins (e.competence) í tengslum við kennaramenntun síðastliðna hálfa öld. Megináhersla er lögð á að fjalla um tengsl hæfnihugtaksins við námshugtakið, umfjöllun um fagmennsku kennara og breytingar á kennarahlutverkinu. Hugtakið er nú ríkjandi í umfjöllun um námsmarkmið en skilgreiningar á því hafa breyst á undanförnum áratugum. Áður fyrr var hæfni notuð um frammistöðu og sýnilegan árangur þar sem verksvit og notagildi náms var í brennidepli. Í seinni tíð hefur hugtakið verið notað um afrakstur náms í breiðum skilningi og einnig hefur „starfshæfni kennara“ (e. teacher competence) verið tengd hugmyndum um fagmennsku kennara og um félagslega sýn á námshugtakið. Greininni er ætlað að vera innlegg í umræðu um það hvernig æskilegt sé að skilgreina þá starfshæfni sem stefnt skuli að í kennaranámi.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1536425960
FWCI: 1.337
Cites: 27
Cited by: 4
Related to: 10