The function of the BRCA2 protein and centriole mobility during cytokinesis studied with live-cell microscopy
Year: 2010
Type: dissertation
Abstract: Kímlínustökkbreytingar í BRCA1 og BRCA2 geninunum auka áhættu á brjóstakrabbameini og öðrum krabbameinum. Faraldsfræðilegar og genamengisrannsóknir hafa aukið skilning á krabbameinunum sem stökkbreytingar í þessum genum valda. \nRannsóknir á hlutverkum BRCA próteinanna hafa aukið þekkingu á þeim frumu- og sameindalíffræðilegu ferlum sem leitt geta til krabbameinsmyndunar og æxlisvaxtar í arfberum BRCA stökkbreytinga. Próteinin hafa verið tengd við mörg hlutverk innan \nfruma, til að mynda viðgerð á tvíþátta DNA brotum og tvöföldun geislaskauta. Í þessu doktorsverkefni hefur meðal annars verið notuð smásjártækni til að fylgjast með lifandi frumum og til að rannsaka hlutverk BRCA2 próteinsins og afleiðingar \ngalla í því í lokaskrefi frumuskiptingahringsins, nefnt frymisskipting. Einnig voru \nkannaðar hreyfingar deilikorna í frymisskiptingu sem hugsanlegur stjórnunarþáttur í \nþessu ferli. Loks var litnun í illkynja BRCA2 stökkbreyttum brjóstaæxlum metin út \nfrá flæðigreiningargögnum og borin saman við stök brjóstakrabbameinsæxli. \nMyndgreining á lifandi frumum er mjög gagnleg tækni til að rannsaka meðal annars \nfrumur, frumulíffræðilega ferla, hlutverk próteina og samspil þeirra. \nHugsanlegt hlutverk BRCA2 próteinsins við frymisskiptingar var kannað með því að \nbera saman frumuskiptingarhraða BRCA2+/+og BRCA2+/- bandvefsfruma sem voru \nóumbreyttar og ómeðhöndlaðar. Frumuskiptingarhraðinn var áætlaður með rauntíma \nmyndgreiningu á lifandi frumum með því að mynda þær með sýnilegu ljósi og \nþannig fylgst með aðskilnaði litninga í tvær dótturfrumur og frymisskiptingu. \nNiðurstöður gáfu til kynna að BRCA2 genaafurðin hefði hugsanlega hlutverki að \ngegna við frymisskiptingar þar sem arfblendnar BRCA2 frumur voru marktækt \nlengur að skipta sér en þær sem ekki báru BRCA2 stökkbreytingu. Þegar litað var \nfyrir próteininu greindist það í þyrpingu við skiptimiðjuna sem og við geislaskautin \nog því var kannað hvort að BRCA2 próteinið stjórni eða hafi hlutverki að gegna í \nlokaskrefum frumuskiptingarferlinsins með samskiptum við geislaskautin. \nNiðurstöðurnar staðfestu ekki þá tilgátu. \nFrekari rannsóknir á lifandi frumum sem tjáðu annars vegar geislaskauts-sérhæfð og \nhins vegar örpíplu-sérhæfð gen tengd við flúrljómandi genaraðir í mismunadi \nfrumulínum sýndu að hreyfingar deilikorna voru misjafnar milli fruma og frumulína \nog að þau ferðast aðallega eftir örpílum eða meðfram nýmynduðum kjarnahjúpnum. \nGagnstætt því sem birt hefur verið gefa niðurstöðurnar til kynna að flutningur \ndeilikorna að skiptimiðju stjórni ekki aðskilnaði dótturfruma. \nNái frumur ekki að ljúka við frymisskiptingu getur það leitt til fjórlitnunar. Litnun \nillkynja BRCA2 stökkbreyttra brjóstakrabbameinsæxla var borin saman við litnun í \nstökum brjóstakrabbameinsæxlum, en litnun æxlanna var áætluð út frá flæðigreiningargögnum. \nFjórlitnun greindist marktækt oftar í BRCA2 stökkbreyttum æxlum og \nstyður þannig við þá hugmynd að BRCA2 taki þátt í frymisskiptingu. Tengsl voru milli \nfjórlitnunar og undirhóps BRCA2 æxla með luminal svipgerð sem aðgreindu sig frá \nBRCA2 æxlum með þrí-neikvæða svipgerð og stökum æxlum sem oftar voru mislitna. \nMeð myndgreiningu á lifandi frumum hefur ljósi verið varpað á frymisskiptinga \nferlið. Niðurstöður gefa til kynna að BRCA2 próteinið hafi þar hlutverki að gegna \nog getur galli í þessu ferli leitt til fjórlitnunar og stuðlað að aukinni áhættu á \nkrabbameinsmyndun í einstaklingum sem bera BRCA2 stökkbreytingu. Ennfremur \nkom í ljós að deilikornin hreyfðust eftir örpíplum og meðfram nýmynduðum \nkjarnahjúp og að færsla deilikorna að skiptimiðju fyrir aðskilnað dótturfruma eru \nekki jafn mikilvægur stjórnandi í þessu ferli og talið hafði verið. \nLykilorð: Frumuskipting, frymisskipting, BRCA2, geislaskaut, deilikorn, fjórlitnun, myndgreining á lifandi frumum.
Source: Skemman
Author: Ásta Björk Jónsdóttir
Language: English
Subfield: Cell Biology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1537998593
