Work

Millistjórnendur og starfsmannamálin

Year: 2014
Type: article
Abstract: Í kenningarlegum viðmiðum og lýsingum á mannauðsstjórnun (Human Resource Management) er gert ráð fyrir þýðingarmiklu hlutverki og þátttöku millistjórnenda (Line managers) í stjórnun starfsmannamála. Millistjórnendur á öllum stigum í fyrirtækjum og stofnunum hafa á síðasta áratug eða svo fengið æ meira krefjandi hlutverk og viðameiri verkefni þessu tengt. Á síðustu tíu til fimmtán árum hefur athygli og áhugi rannsakenda beinst að því hvernig til hefur tekist að yfirfæra ábyrgðina og viðfangsefni HRM á millistjórnendur og hvernig samskiptin og samstarfið við stoðeiningu starfsmannamála og sérfræðinga í mannauðsstjórnun er háttað. Í því samhengi hafa vaknað spurningar um hvort og þá hvaða stuðning og námsmöguleika millistjórnendur fá til þess að geta sinnt hlutverki sínu sem stjórnendur starfsmannamála. Markmiðið með þessari grein er að gera með kerfisbundnum hætti úttekt á rannsóknarheimildum sem rannsaka millistjórnendur og HRM. Tilgangurinn er að byggja undir markvissa og ítarlega rannsókn sem bætir við þekkingu þar sem hana skortir.
Source: Skemman
Language: Danish
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1544686949
FWCI: 0.489
Cites: 26
Cited by: 2
Related to: 10