Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Dýpri skilnings er þörf á sambandi manna og náttúrunnar. Þetta verður æ mikilvægara í ljósi umhverfisvandamála, sem fara vaxandi. Á undanförnum árum hafa ýmsir listamenn um allan heim talað fyrir því að þessi vandamál krefjist viðbragða af menningarlegum og skapandi toga. Þetta á meðal annars við um hið áberandi rof á tengslum manna við náttúruna, sem er efni þessarar ritgerðar. Við rannsóknina var beitt eigindlegri aðferðafræði, þar á meðal sjálfs-etnógrafíu, vettvangsathugunum og viðtölum við listamenn og þátttakendur. Fjögur utanhúsverk og sýningar sem byggja á þátttöku áhorfenda voru valin, bæði á Íslandi og Skotlandi, og rannsakað hvernig einstaklingar upplifa, skynja og tengjast náttúrlegu umhverfi í gegnum listir. Þetta var borið saman við þrjár gönguferðir á friðlýstum svæðum, þar sem fræðsla með aðferðum náttúrutúlkunar var í boði. Spurt er hvernig móta megi breiða, fjölfaglega nálgun til að fjalla um umhverfismál, samband manna og náttúrunnar og umhverfismennt. Gildi slíkrar marghliða reynslu til að auka tilfinningu fólks fyrir tengslum við náttúruna og einingu með henni er einnig metið. Í greiningunni er horft náið til þeirra tengsla og spennu sem kom upp á yfirborðið í gögnunum, þ.e.a.s. á milli vísinda og lista, huga og líkama, tilfinninga og hugsana, sérstöðu listvettvangs og staðar, og beinnar og óbeinnar reynslu af náttúrlegu umhverfi. Rannsóknin leiðir í ljós að listtengd upplifun af náttúrlegu umhverfi er mikilvæg leið til þess að þróa og dýpka tilfinningaleg tengsl við náttúruna. Þörf er á samstarfsverkefnum og fjölfaglegri nálgun, sem sameinar list og vísindi, þegar vinna þarf að umhverfismálum.
Source: Skemman
Author: Louise Emslie
Institution: University of Iceland
Language: English
Subfield: Visual Arts and Performing Arts
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
SDG: Life on land
Open Access status: green
Funder: Háskóli Íslands
OpenAlex ID: W1552171722
