Work

Hlutverk skólastjóra í menntun til sjálfbærni : reynsla af þróunarstarfi í fjórum grunnskólum

Year: 2010
Type: article
Abstract: Rannsóknir og reynsla hafa sýnt að aðgerðir og viðbrögð skólastjóra eru mikilvæg í mótun og framkvæmd þróunarverkefna og breytinga í skólastarfi. Með nýrri stefnu fylgja breyttar kröfur um starfshætti skóla sem hafa áhrif á hvernig skólastjórnendur og kennarar vinna. Skólastjórar hafa eigin hugmyndir um hvernig vænlegast sé að stuðla að breytingum en skuldbinding og þátttaka skólastjórans og allra annarra starfsmanna virðist ráða miklu um hvernig til tekst. Markmið þessarar greinar er að ræða hvert sé hlutverk skólastjóra í þróunarstarfi sem snýst um menntun til sjálfbærni, einum af fimm nýjum grunnþáttum í menntastefnu núverandi mennta- og menningarmálaráðherra. Einnig er spurt hvort hlutverk skólastjóra í þróunarstarfi um menntun til sjálfbærni geri annars konar kröfur til skólastjóra en þróunarstarf almennt. Þessi athugun er viðtalsrannsókn í fjórum íslenskum grunnskólum þar sem talað var við tólf þátttakendur og sex skólaráðgjafa. Öll viðtölin voru tekin sem hluti af rannsóknar- og þróunarverkefni um menntun til sjálfbærni og getu til aðgerða. Einnig voru sjálfsmatsskýrslur þátttökuskóla á eigin framvindu í þróunarverkefninu hafðar til hliðsjónar. Niðurstöður benda til þess að skilningur skólastjóra á menntun til sjálfbærni sé veigamikill þáttur í því hvernig þróunarstarf innan skólans mótast. Í þeim skólum þar sem skólastjóri hefur unnið í anda hugmynda um menntun til sjálfbærrar þróunar og tekið virkan þátt í undirbúningi, framkvæmd og mati á verkefni síns skóla eru teikn um að þróunarstarfið hafi skilað árangri og áhrifum inn í daglegt skólastarf.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1558705353
FWCI: 2.248
Cites: 8
Cited by: 8
Related to: 10