A pedometer-based physical activity intervention may be effective in increasing daily step-count and improving subjective sleep quality among adolescents
Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Ónæg líkamleg hreyfing og slök huglæg svefngæði ungmenna eru áhyggjuefni þar sem þau tengjast ýmsum heilsuvandamálum. Notkun skrefmæla í íhlutunum virðist gefa góða raun meðal fullorðinna, en minna er vitað um áhrif þessarar íhlutunar á líkamlega hreyfingu ungmenna. Einnig er lítið vitað um áhrif skrefmælatengdrar íhlutunar á huglæg svefngæði ungmenna. Markmið: Skoða áhrif þriggja vikna íhlutunar með skrefmæla á aukinn daglegann skrefafjölda og huglæg svefngæði ungmenna. Aðferð: Fjórir íslenskir menntaskólar voru með slembivali valin í íhlutunarhóp með skrefmæla til að meta líkamlega hreyfingu eða viðmiðunarhóp án skrefmæla. Fimmtíu og þrír nemendur á aldrinum 15-16 ára skiluðu inn nothæfum gögnum en meðaltals skrefafjöldi og huglæg svefngæði voru metin yfir 3 daga við grunnlínu og eftirfylgni. Niðurstöður: Mælingar voru aðlagaðar að grunnlínu og sýndi ANCOVA greining marktækt hærri meðal skrefafjölda (p = .03) hjá þátttakendum í íhlutunarhópi miðað við viðmiðunarhóp. Endurteknar mælingar sýndu einnig að huglæg svefngæði jukust marktækt (p = .02) í íhlutunarhópi miðað við viðmiðunarhóp eftir því sem á leið. Niðurlag: Notkun skrefmælaíhlutunar á líkamlega hreyfingu getur aukið daglegann skrefafjölda ungmenna sem og bætt huglæg svefngæði þeirra. Lykilorð: skrefmælir, líkamleg hreyfing, huglæg svefngæði, ungmenni
Source: Skemman
Author: Richard Tahtinen
Language: English
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1572730575
