Work

Broadening of the Icelandic security perspective

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er fjallað um það hvernig íslensk stjórnvöld nálgast öryggi sem ekki snýr að hernaðarlegum ógnum. Farið er yfir þróun umræðu, löggjafar og stefnumótunar um öryggismál, með sérstakri áherslu á tímabilið 2006-2014. Þá er einnig fjallað um áhrif öryggisnálgunar stjórnvalda á stofnanir sem starfa á sviði almannaöryggis og er sérstaklega horft til þróunar almannavarnakerfisins á Íslandi sem nær eingöngu hefur miðast við að bregðast við náttúruhamförum þó að ákveðin breyting sé að verða þar á. \nÍslensk stjórnvöld hafa ekki sett sér formlega stefnu í öryggismálum, en litið hefur verið á aðild Íslands að Norður-Atlantshafsbandalaginu og varnarsamninginn við Bandaríkin sem hornstein í öryggis- og varnarmálum. Eftir að bandaríski herinn fór frá Íslandi árið 2006 voru öryggismál tekinn til endurskoðunar. Áhættumatsskýrsla sem kom út árið 2009 lagði grunninn að stefnumótun stjórnvalda sem nú fer fram, þ.e. þróun þjóðaröryggisstefnu og stefnu í í almannavarna-og öryggismálum. Það sem nú þegar liggur fyrir um þessar stefnur gefur til kynna að öryggisviðhorf stjórnvalda takmarkist ekki lengur við hernaðarlegt öryggi og landvarnir. \nÍ ritgerðinni er einnig fjallað er um áhættuhugtakið en öryggismál eru í auknum mæli sett í samhengi við áhættu og er Ísland engin undantekning þar á. Mat á áhættu, þ.e. líkindi á atburðum og mögulegar afleiðingar, er þannig notað við forgangsröðun verkefna og fjármuna. Þróun öryggisviðhorfs stjórnvalda er sett í samhengi við ráðandi kenningar í alþjóðasamskiptum, þá sérstaklega raunsæisstefnu og mótunarhyggju. Hugtakið öryggisvæðing er ferli sem á sér stað þegar málefni krefjast neyðarúrræða, þ.e. ná út fyrir hefðbundnar pólitískar lausnir. Niðurstöður ritgerðarinnar eru í meginatriðum þær að almannaöryggi hafi ekki enn verið öryggisvætt á Íslandi. Sú ályktun er dregin að frekar sé hægt að tala um aukna stjórnmálavæðingu á áhættuþáttum sem snúa að almannaöryggi. Málefni sem talin eru snúa að almannaöryggi eru orðin að viðfangsefni stjórnmálanna og hafist hefur verið handa við að móta um þau opinbera stefnu.
Source: Skemman
Language: English
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1580168800
Cites: 39
Cited by: 3
Related to: 10