Rannsóknir á samningum kynjanna um launakjör. Kerfisbundin úttekt
Year: 2013
Type: article
Study design: Systematic Review
Abstract: Markmið greinarinnar er að vinna kerfisbundna úttekt á rannsóknum á kynja- \nmun og samningum um launakjör. Rannsóknir verða greindar út frá aðferða- \nfræði, þ.e. hvort um er að ræða könnun á atferli eða viðhorfi; úrtak af vinnu- \nmarkaði eða nemendur; æfingar eða raunverulega samninga; samninga sem \nskapa verðmæti eða skipta verðmætum; og svo hvort um samanburðarrann- \nsóknir er að ræða. Mikill meirihluti rannsókna á samningum byggir á bandarisk- \num rannsóknum og verður kannað hver uppruni úrtaks er og hvort menningar- \nmunur er tekinn til greina. Einnig verða niðurstöður rannsóknanna rýndar með \ntilliti til flokkunar í þemu, s.s. mat á niðurstöðum, valdastöðu, staðalmynda og \náhrifa viðsemjanda. Eins og á mörgum öðrum sviðum má gera ráð fyrir að ran- \nsóknir á kynjamun séu útsettar fyrir jákvæðri bjögun, þ.e.a.s. að niðurstöður fáist \nfrekar birtar ef fram kemur kynjamunur heldur en ef ekki finnst marktækur \nmunur á kynjunum. Áhrif þessa á niðurstöðurnar verða rædd.
Source: Skemman
Author: Þóra Christiansen
Language: Icelandic
Topic: Labour Market and Migration
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1585478608
