Work

Induction and regulation of CAMP gene expression

Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Örverudrepandi peptíðið LL-37 er af flokki cathelicidina og er mikilvægt sem fyrsta \nvörn okkar gegn bakteríum. Örvun á tjáningu varnarþátta eins og LL-37 gæti verið ný \nleið til að ráða niðurlögum baktería þar sem vanaleg sýklalyf hafa brugðist. \nÁhrif 4-phenylbutyrate (PBA) á tjáningu bakteríudrepandi peptíða var athuguð. \nFyrst voru áhrif PBA á tjáningu cathelicidin antimicrobial peptide (CAMP) mRNAsins \ngreind í nokkrum frumulínum með PCR greiningu í rauntíma. Tjáning gensins reyndist \nörvuð í öllum frumulínunum. Annað gen DEFB1 sem skráir bakteríudrepandi peptíðið \nhuman beta defensin 1 sýndi líka aukna tjáningu í lungnaþekjufrumulínu (VA10) \nen minnkaða í monocytum (U937). Framhaldstilraunir í verkefninu lutu eingöngu að \nspurningum tengdum tjáningu CAMP genins í VA10 frumulínunni. Þessar tilraunir \nsýndu að örvun af völdum PBA magnast með 1,25-dihydroxyvítamín D3 viðbót hvort \nsem litið er á CAMP mRNA eða prótín. Þá kom í ljós að PBA örvunin er óbein og háð \nvirkri þýðingu en cyclohexamide sem hindrar prótínþýðingu kom í veg fyrir örvunina. \nEinnig var unnt að draga úr örvuninni með hindrum fyrir prótín kínasana MEK1/2 og \nJNK. Í lokin sýndum við að -methylhydrocinnamate (ST7), sem líkist PBA, gat aukið \ngenatjáninguna. \nNiðurstöður rannsóknanna auka skilning okkar á tjáningu bakteríudrepandi peptíða \nog gefa vísbendingu um að PBA og/eða ST7 gætu virkað sem lyf gegn bakteríusýkingum \nmeð því að efla náttúrulegt varnarkerfi okkar.
Source: Skemman
Language: English
Subfield: Microbiology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1587738541
Cites: 53
Cited by: 3
Related to: 10