Year: 2010
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: ÓlafsdóttirBúsáhaldabyltingin svonefnda, fjöldamótmælin sem áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur í janúar 2009, er ekki aðeins óvenjulegur viðburður í íslenskri samtímasögu heldur veitir hún jafnframt einstakt tækifæri til að leggja til þekkingu til rannsókna á sviði félagslegra hreyfinga (social movements).Mótmæli, róstur og byltingar hafa lengi verið félagsfræðingum hugleikin viðfangsefni, enda kristalla slíkir atburðir átakalínur meðal þegnanna um grundvallaratriði í þjóðfélagsgerðinni, auk þess sem þeir geta leitt til raunverulegra breytinga í þjóðfélaginu.Efnistökin hafa verið fjölbreytt (sjá Marx og Wood, 1975).Til dæmis hafa rannsakendur skoðað mótmæli og róstur í því skyni að læra um ferli sem breyta hegðun fólks þegar það kemur saman í stórum hópum (Blumer, 1978;Milgram og Toch, 1969) og hvernig leiðtogar verða til við slíkar aðstæður (Toch, 1965).Miðlægt viðfangsefni á sviðinu hefur verið að draga fram þær þjóðfélagsaðstæður sem helst hrinda af stað róstrum og byltingum.Davies (1962) hefur sett fram þá kenningu að byltingar og fjöldamótmæli eigi sér oft rætur í efnahagslegum eða félagslegum framförum sem kynda undir væntingar og markmið borgaranna.Byltingar og mótmæli eigi sér oft stað þegar bakslag hefur orðið eftir slíkt framfaraskeið, til dæmis þegar efnahagslegur uppgangur endar í djúpri kreppu eða þegar snörp afturför verður á lýðræðisþróun.Davies telur ástæðuna vera að þegar bakslagið kemur upplifi margir skerðingu á lífsgæðum sínum, með tilheyrandi upplifun á reiði og óréttlæti.Með öðrum orðum geta slíkar aðstæður framkallað afstæðan skort meðal borganna -þjóðfélagið stendur ekki undir væntingunum sem orðið hafa til á framfaraskeiðinu.Aðstæður á Íslandi í janúar 2009 voru að mörgu leyti dæmigerðar fyrir þær kringumstæður sem Davies (1962) telur að leitt geti til fjöldamótmæla og byltinga.Fjármálahrunið olli miklu efnahagslegu bakslagi sem kom í kjölfar langvarandi efnahagslegs uppgangs sem kynt hafði undir væntingar almennings um árabil.Þótt brostnar væntingar og upplifun einstaklinga af efnahagslegum þrengingum, atvinnumissi eða öðrum persónulegum erfiðleikum kunni að hafa hvatt fólk til þess að mæta í mótmælin í janúar 2009 er þó ekki víst að svo sé.Aðrir þættir kunna að hafa vegið þyngra í að hvetja fólk til þess að mæta.Fræðimenn hafa bent á að óánægja fólks með lífskjörin leiði ekki til róstra og byltinga nema til staðar sé útbreidd gagnrýni á valdhafana sem dregur lögmæti þeirra í efa (Blumer, 1978).Orðræða um spillingu í íslensku samfélagi og vanhæfni stjórnmálanna var áberandi í opinberri umræðu á þessum tíma og einnig birtist slík orðræða í ræðuhöldum tengdum mótmælunum.Hið sama má segja um orðræðu frá vinstri væng stjórnmálanna um að stjórnvöld hefðu gengið of langt í átt til frjálshyggju á undanförnum árum.Forvitnilegt er að skoða hve mikinn þátt þess konar hugmyndir áttu í að hvetja fólk til að taka þátt í mótmælunum í janúar 2009.Ætlun okkar er að varpa ljósi á þessi álitaefni með því að bera saman einkenni og viðhorf þeirra einstaklinga sem tóku þátt í fjöldamótmælunum í janúar 2009 við þá einstaklinga sem ekki tóku þátt.Með hliðsjón af kenningu Davies mætti ætla að einstaklingar sem telja sig hafa orðið fyrir lífskjaraskerðingu vegna kreppunnar séu líklegri en aðrir til þess að hafa mætt í mótmælin.Við höfum komist að því áður að einstaklingar sem telja lífskjör sín hafa versnað eftir að kreppan skall á séu líklegri en aðrir
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Urban Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1605334044
