Hvaða þættir ráða mestu um hvernig gengur að innleiða aðferðir við sjálfsmat í grunnskólum? : niðurstöður athugana í sex skólum
Year: 2005
Type: article
Abstract: Samkvæmt athugunum menntamálaráðuneytisins er mjög misjafnt hvernig skólar uppfylla ákvæði um sjálfsmat sem leitt var í lög árið 1995. Í þessari rannsókn var leitast við að varpa ljósi á þá þætti sem hafa einkum áhrif á það hvernig skólum gengur að koma sjálfsmati í framkvæmd. Tekin voru viðtöl við skólastjórnendur og kennara í sex skólum af mismunandi stærð til að afla gagna um sjálfsmatið. Talsverður munur kom fram milli skólanna. Í sumum hafði lítið sjálfsmat farið fram en í öðrum mikið. Það sem helst skýrir muninn milli skólanna er forysta skólastjórnenda, þekking á sjálfsmati og sjálfsmatsaðferðum og viðhorf stjórnenda og kennara til gildis sjálfsmats sem aðferðar við breytingar og þróun skólastarfs.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W1638506776
