A Study of Stroke in Southern Ghana: Epidemiology, Quality of Life and Community Perceptions
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Heilablóðfall er sjúkdómur sem er mjög mikilvægur lýðheilsu og getur haft í för með sér gríðarlegar efnahags- og félagslegar afleiðingar. Í Gana mælist heilablóðfall meðal efstu þriggja algengustu dánarorsaka og er ein helsta ástæða sjúkrahússinnlagna hjá fullorðnu fólki. Þrátt fyrir hátt og aukið álag á lýðheilsu sökum heilablóðfalls eru fáar nýlegar rannsóknir tengdar málefninu að finna í landinu. Þar af leiðandi er lítil þekking til staðar um ýmsa þætti heilablóðfalls í Gana sem setur virku eftirliti miklar takmarkanir þar í landi. Markmið: Markmið doktorsverkefnisins var að (a) lýsa faraldsfræðilegum einkennum þeirra sem lifðu af heilablóðfall í Suður Gana (b) meta heilsutengd lífsgæði (HRQoL) þeirra sem lifa af heilablóðfall og bera kennsl á tilheyrandi áhrifaþætti (c) meta áhættu samfélagsáunninar bakteríumigu meðal þeirra sem lifa af heilablóðfall (d) meta þekkingu, viðhorf og hegðun með tilliti til heilablóðfalls í suðurhluta Gana. \nAðferðir: Verkefnið var unnið í Suður Gana og var skipt upp í þrjá rannsóknir. Í fyrstu rannsókninni var úrtakið 156 heilablóðfallsjúklingar sem stunduðu sjúkraþjálfun við Korle-Bu Teaching Hospital (KBTH) og Tema General Hospital (TGH). Til samanburðar var notast við úrtak 156 áætlaðra heilbrigðra einstaklinga með sambærilegri dreifingu aldurs og kyns. Margreyndur HRQoL spurningalisti, skipt upp í sjö lén, var notaður til að safna upplýsingum frá öllum þátttakenda rannsóknarinnar. Klínískum faraldsfræðigögnum var einnig safnað frá eftirlifendum heilablóðfalls um þætti eins og alvarleika heilablóðfallsins og áhættuþætti. Í annarri rannsókninni var þvagsýnum safnað frá 70 heilablóðfallssjúklingum í sjúkraþjálfun hjá KBTH og 83 áætlaðra heilbrigðra einstaklinga með sambærilegri dreifingu aldurs og kyns. Þvagsýnin voru greind með stöðluðum örverufræðilegum aðferðum til að finna bakteríumigu og greina orsakavaldinn. Í þriðju rannsókninni, var stigskipt úrtökutækni notuð til að velja 63 heimili í öllum 11 hverfum stórborgarsvæðisins í Accra (höfuðborg Gana). Staðlaður spurningalisti var notaður til að safna gögnum um almenna þekkingu á heilablóðföllum frá svarendum sem valdir voru af handahófi frá völdu heimilunum. Víðtækar tölfræðilegar greiningar voru gerðar á öllum söfnuðum gögnum, þar með talið aðhvarfsgreining til að skilgreina áhrifaþætti HRQoL, þvagfærasýkingar og almennrar þekkingar á heilablóðföllum.
Source: Skemman
Author: Eric Sampane-Donkor
Language: English
Subfield: Clinical Neurology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
Funder: Háskóli Íslands
OpenAlex ID: W1861385128
