Work

Greining, árangur meðferðar og síðkomnar aukaverkanir æxla í miðtaugakerfi í æsku

Year: 2002
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Æxli í miðtaugakerfi er annar algengasti illkynja sjúkdómurinn í börnum, næst á eftir hvítblæði.Árangur meðferðar hefur farið stöðugt batnandi og því eykst mikilvægi þess að greina möguleg langtímaáhrif og síðkomna fylgikvilla meðferðar.Tilgangur rannsóknarinnar var að finna heildarfjölda sjúklinga á Íslandi, greiningu þeirra og árangur meðferðar og kanna síðkomna fylgikvilla og langtímaáhrif meðferðar á eftirlifandi einstaklinga.Aðferðir: Sjúklingar voru fundnir með leit í sjúkraskrám á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Landspítalanum auk þess sem farið var yfir aðgerðarbækur á SHR.Upplýsingar um sjúkdóminn, greiningu og meðferð var safnað.Allir þátttakendur í rannsókninni komu í viðtal og skoðun, heyrnarmælingu, blóðog þvagrannsóknir.Spurningalisti varðandi félags-lega aðlögun, skólagöngu, minni, einbeitingu og líðan var einnig lagður fyrir þátttakendur.Niðurstöður: Á árunum 1970-1995 greindust 57 börn á Íslandi yngri en 16 ára með æxli í miðtaugakerfi, 30 stelpur og 27 strákar.Tveir sjúklingar með meinvörp í heila voru útilokaðir frá frekari uppvinnslu.Nú eru 38 þessara einstaklinga á lífi, 19 konur og 19 karlar.Sautján sjúklingar höfðu astrocytoma af gráðu 1 eða 2 en sjö sjúklingar astrocytoma af gráðu 3 eða 4. Sjö sjúklingar höfðu greinst með medulloblastoma, aðrar tegundir voru sjaldgæfari.Fjórir sjúklingar með góðkynja æxli í mænu voru útilokaðir frá rannsókn.Þrír búa erlendis og þrír neituðu þátttöku.Því tóku 28 einstaklingar þátt í rannsókninni, 15 karlmenn og 13 konur.
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2146941527
FWCI:
Cites: 32
Cited by:
Related to: 10