Work

Listin að leika sér ~frístundir fullorðinna~

Year: 2009
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Helsta viðfangsefni þessa verkefnis er leikurinn með megináherslu á fullorðna, en þar sem lítið er til um það efni á íslensku. Umræðan, um hvaða áhrif leikurinn hefur, kemur upp á yfirborðið annað slagið og þá er oftast talað um leik barna en frístundir fullorðinna. Það er sífellt meiri vakning í samfélaginu um mikilvægi þess að hreyfa sig og sinna áhugamálum sínum til að hlúa að líkamlegri og andlegri heilsu. En erfitt er að skilgreina leikinn því það felst svo margt í þessu eina orði. Í verkefninu er farið í saumana á leiknum út frá sjónarhornum fræðimanna. Leik kenningin (e. play theory) verður skoðuð og hvað ber að varast í leik. Áhrif leiksins á þroska barna könnuð og hver tilgangur hans er á fullorðinsárunum. Að lokum hvað tíðni þátttöku í frístundum og nándin, þessi hámarks meðvitund sem er innifalin í frístundinni, hafa á lífsánægju fólks. \nKönnun var lögð fyrir starfsmenn Mosfellsbæjar. Tilgangurinn var að sjá hvernig einstaklingar skilgreina orðið leikur og hvaða áhrif hann hefur á líðan þeirra. \nHelstu niðurstöðurnar eru að fólk hefur mismunandi sýn á hvað felst í þessu orði þegar það er skoðað út frá fullorðnum en eru á eitt sammála um að leikurinn sé mikilvægur. Rannsóknin leiddi í ljós jákvæða fylgni þess að leika sér og hamingju fólks. \nLykilorð: Frístundir, flæði.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2147921623
Cites: 8
Cited by:
Related to: 10