Work

Vefjagigt og kvíðaröskun

Year: 2002
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Orsök vefjagigtar er óljós.Sjúkdómsgreiningin byggist á því að sjúklingur hafi útbreidda verki og þreifieymsli í vöðvum en ýmis önnur einkenni geta fylgt, svo sem truflaður nætursvefn, óeðlileg þreyta, kvíði og skert einbeiting.Öll þessi einkenni geta fylgt kvíðaröskun.Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvort vefjagigt tengist öðrum sjúkdómum, sérstaklega kvíðaröskun.Efniviður og aðferðir: Upplýsingar voru unnar úr örorkuskrá Tryggingastofnunar ríkisins um kyn, aldur og sjúkdómsgreiningar allra sem áttu í gildi hæsta örorkumat (að minnsta kosti 75% örorku) 1. desember 2001.Bornar voru saman sjúkdómsgreiningar hjá tveimur hópum öryrkja -konum með vefjagigtargreiningu (rannsóknarhópi) og konum án þeirrar greiningar (samanburðarhópi).Það voru 716 konur í hvorum hópi.Auk þess var borinn saman fjöldi sjúkdómsgreininga á einstakling hjá þeim konum í rannsóknarhópnum sem höfðu vefjagigt sem frumgreiningu á örorkumati og hjá öllum konum á örorkuskrá sem höfðu kvíða/depurð sem frumgreiningu.Niðurstöður: Í rannsóknarhópnum var vefjagigt eina greiningin hjá aðeins 6,8%, en í samanburðarhópnum höfðu 38,3% eina skráða greiningu í örorkumati.Marktækur munur var á dreifingu sjúkdómsgreininga samkvæmt aðalgreiningarflokkum hjá vefjagigtarhópnum og samanburðarhópnum (p<0,0001).Af einstökum greiningarflokkum var aðeins marktækt aukinn fjöldi greininga geðraskana í vefjagigtarhópnum (p<0,0001).Fjöldi greininga hjá konum með vefjagigt sem frumgreiningu var borinn saman við fjölda greininga hjá konum sem höfðu kvíða og/eða depurð sem frumgreiningu.Mynstrið hjá þessum tveimur hópum reyndist áþekkt.Ályktanir: Mun meiri líkur eru á að konur með vefjagigt hafi geðröskun, einkum kvíðaröskun, en aðrar konur með hæsta örorkustig.Þetta bendir til tengsla milli vefjagigtar og kvíða sem taka ber fullt tillit til í meðhöndlun þessa ástands. InngangurAukning hefur orðið á örorku vegna vefjagigtar á Íslandi (1).Rétt flokkun sjúkdómsástands er einn af hornsteinum árangursríkrar meðferðar sem orðið getur til að bæta heilsu og koma í veg fyrir örorku.Orsök vefjagigtar er óljós og umdeilt er hvort hún sé sérstakur sjúkdómur eða einfaldlega álagseinkenni
Language: Danish
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2172228740
FWCI:
Cites: 29
Cited by:
Related to: 10