Year: 2009
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið: Að meta algengi geðlyfjanotkunar aldraðra sem bjuggu utan stofnana árið 2006.Efniviður og aðferðir: Lýsandi áhorfsrannsókn sem byggði á gögnum úr lyfjagagnagrunni Landlæknisembættisins.Þýðið var Íslendingar 70 ára og eldri sem bjuggu utan stofnana (8,6% af heildarmannfjölda).Algengi þunglyndis-, geðrofs-, kvíðastillandi-og svefnlyfjanotkunar (ATCflokkar N06A, N05A, N05B, N05C) var skilgreint sem fjöldi einstaklinga á hverja 100 íbúa sem leysti út eina eða fleiri lyfjaávísun á tiltekin lyf árið 2006.Niðurstöður voru bornar saman við upplýsingar úr lyfjagagnagrunni um geðlyfjanotkun Dana á aldrinum 70 til 74 ára.Niðurstöður: Einstaklingar 70 ára og eldri leystu út þriðjung allra lyfjaávísana á Íslandi árið 2006, þar af var fjórðungur á geðlyf.Eldri konur voru líklegri en karlar til að nota geðlyf (RR=1,40 95% CI: 1,37-1,43).Algengi geðlyfjanotkunar í þýðinu var 65,5% fyrir konur og 46,8% fyrir karla.Algengust var notkun kvíðastillandi lyfja og svefnlyfja (N05B eða N05C), 58,5% meðal kvenna og 40,3% meðal karla.Algengi þunglyndislyfjanotkunar var 28,8% meðal kvenna og 18,4% meðal karla.Um 5% þýðisins notaði geðrofslyf.Algengi geðlyfjanotkunar meðal 70-74 ára var 1,5 til 2,5 falt hærra á Íslandi en Danmörku.Ályktun: Geðlyfjanotkun eldri Íslendinga er almenn, einkum í flokkum kvíðastillandi-og svefnlyfja.Samanborið við upplýsingar úr dönskum lyfjagagnagrunni fyrir aldurshópinn 70-74 ára er ávísun á geðlyf algengari á Íslandi.inngangur Öldruðum hefur fjölgað í heiminum á síðustu áratugum.Hlutfallsleg fjölgun er mest meðal háaldraðra.Sjúkdómar sem þurfa lyfjameðferðar við verða algengari með aldrinum.Í okkar heimshluta er víða meira en helmingi lyfja ávísað til einstaklinga eldri en 65 ára. 1 Ný lyf og ábendingar lyfjameðferðar koma stöðugt fram og algengara er að fleiri en eitt lyf séu notuð samhliða við sömu ábendingu.Lyfjanotkun aldraðra á Norðurlöndunum hefur aukist jafnt og þétt á síðustu áratugum.2-4 Sem dæmi má nefna að í Svíþjóð er meira en fjórðungi lyfja ávísað til einstaklinga 75 ára og eldri sem eru 9% af heildaríbúafjölda.5 Samanburðarrannsókn í Gautaborg á hópum 70 og 80 ára einstaklinga á 30 ára tímabili sýndi að í lok tímabilsins voru að jafnaði notuð fleiri lyf og færri voru lyfjalausir.6Vandamál tengd óviðeigandi lyfjaávísun, meðferðarheldni, ofnotkun og vanmeðhöndlun eru öll vel þekkt við lyfjameðferð aldraðra.[7][8][9][10][11] Geðlyfjanotkun aldraðra skýrist meðal annars af algengi geðrænna einkenna meðal eldri aldurshópa.[12][13][14] Þótt geðlyf virki á einkenni geðsjúkdóma, svefntruflanir og hegðunarvandamál getur notkun þeirra verið vandkvæðum bundin vegna líffræðilegra breytinga sem tengjast aldri.Aldraðir eru viðkvæmir fyrir aukaverkunum lyfja, svo sem slævandi áhrifum, truflunum á vitrænni getu, utanstrýtueinkennum og byltum.7,15,16 Þær upplýsingar sem liggja fyrir um geðlyfjanotkun aldraðra hér á landi sýna yfirleitt hlutfallslega mikla notkun samanborið við lyfjanotkun í nágrannalöndum okkar.[17][18][19]10 Norðurlöndin reka opinbera lýðgrundaða gagnagrunna um lyfjanotkun á landsvísu.Lyfjagrunnarnir sem flestir eru nýir byggjast á upplýsingum frá lyfsölum um lyfseðilsskyld lyf sem leyst hafa verið út í lyfjaverslunum.Áhersla er nú lögð á úrvinnslu úr þessum grunnum til rannsókna og stefnumótunar og við gæðamat.Markmið þessarar rannsóknar var að greina algengi geðlyfjanotkunar á Íslandi meðal einstaklinga 70 ára og eldri, sem búsettir voru utan dvalar-og hjúkrunarheimila.Jafnframt var algengi geðlyfjanotkunar meðal yngri aldraðra borið saman við sambærilega notkun í Danmörku. Efniviður og aðferðirUm var að ræða lýsandi áhorfsrannsókn sem byggði á gögnum úr lyfjagagnagrunni Landlæknisembættisins.Rannsóknartímabilið náði frá 1. janúar
Language: Icelandic
Subfield: Geriatrics and Gerontology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2223351950
