Work

Blóðsýkingar og aðrar ífarandi sveppasýkingar hjá börnum á Íslandi

Year: 2001
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Tíðni ífarandi sveppasýkinga fer vaxandi víðast hvar í hinum vestræna heimi.Fyrirburar og ónæmisbæld börn eru í hættu á að fá blóðsýkingar af völdum sveppa og í kjölfarið dreifðar sýkingar.Sýkingar af þessum toga hafa í för með sér háa dánartíðni.Þær hafa ekki verið rannsakaðar hjá börnum hérlendis.Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúkraskrár allra barna 16 ára og yngri á Íslandi er greindust með blóðsýkingar og/eða dreifðar sýkingar af völdum gerog myglusveppa á árunum 1980-1999.Niðurstöður krufninga og vefjarannsókna voru einnig kannaðar.Skráðar voru upplýsingar um áhættuþætti, einkenni, meðferð og afdrif sjúklinga.Allir tiltækir sveppastofnar voru ræktaðir og næmi þeirra fyrir sveppalyfjum kannað.Niðurstöður: Alls greindust 18 börn með 19 ífarandi sveppasýkingar á þessu 20 ára tímabili.Tólf blóðsýkingar greindust hjá 11 börnum og jókst nýgengið marktækt á rannsóknartímabilinu úr 0,28 í 1,90 sýkingar á 100.000 börn á ári (p=0,037).Tæpur helmingur barna með blóðsýkingu voru fyrirburar.Öll börn með sannaða blóðsýkingu voru með djúpa æðaleggi og flest höfðu fengið næringu í æð, sýklalyf og barkstera.Candida albicans ræktaðist í níu tilvikum af 12 (75%).Þrjú börn af 11 fengu dreifða sýkingu.Til viðbótar greindust þrjú börn með dreifða Candida sýkingu við krufningu eða vefjarannsókn.Að auki fengu tvö börn heilahimnubólgu af völdum Candida albicans án sannaðrar blóðsýkingar.Tvö börn greindust með ífarandi sýkingar af völdum myglusveppsins Aspergillus fumigatus og læknuðust þau bæði.Þrjú börn af þeim 16 sem fengu ífarandi Candida sýkingar létust.Ályktanir: Þessi rannsókn á ífarandi sveppasýkingum hjá börnum er sú fyrsta er nær til heillar þjóðar.Veruleg hækkun hefur orðið á nýgengi sveppasýkinga í blóði hjá börnum hérlendis á síðastliðnum 20 árum.Greining alvarlegra sveppasýkinga er oft torveld og neikvæð blóðræktun útilokar ekki dreifða sýkingu.Í ljósi hækkandi nýgengis og hárrar dánartíðni er mikilvægt að hafa umræddar greiningar í huga hjá mikið veikum börnum.
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2244000393
FWCI:
Cites: 32
Cited by: 1
Related to: 10