Work

Influences of spring type, physicochemical factors and longitudinal changes in freshwater spring invertebrate ecology

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Lindir eru einstök ferskvatnsvistkerfi, sem í raun má kalla náttúrulega rannsóknarstofu, þar \nsem hægt er að sjá hvaða þættir eru mikilvægir fyrir mótun smádýrasamfélaga. Í þessari \nrannsókn voru sýni tekin úr 22 lindum á eldvirka belti Íslands. Með því að bera saman \numhverfisbreytur og smádýrasamfélög kom í ljós að lindargerð, hitastig og pH skiptu \nmestu máli við mótun samfélaga. Áður hafði verið gert ráð fyrir að lindargerð og hitastig \nskiptu miklu máli, en það kom á óvart að sjá mikilvægi pH. \nÞó svo að lindir séu taldar vera stöðugar, þá hafa rannsóknir sýnt að umhverfisþættir \nbreytast hratt þegar farið er frá lindum niður lindarlæki. Áður hafa rannsóknir reynt að \nfinna hvar vistkerfi lindarinnar endar og vistkerfi lindarlækjarins tekur við. Til að meta \nþetta hafa vísindamenn notað eðlisfræðilegar breytur eins og hitastig og fjarlægð. Í þessari \nrannsókn skoðaði ég fjóra lindarlæki í Hengladölum, þar sem að jarðhita gætir. Tekin voru \nsýni í lindinni og á nokkrum stöðum niður lindalækinn, til að meta hvernig \nsmádýrasamfélög breytast og hvaða þættir skipta þar máli. Niðurstöðurnar sýndu að þó \nnokkrar breytingar urðu í smádýrasamfélögunum, en þó fundust ekki greinileg skil milli \nlindar og lindarlækjarins.
Source: Skemman
Language: English
Subfield: Ecology
Open Access status: green
Funder: Rannís
OpenAlex ID: W2258419533
Cites: 56
Cited by: 1
Related to: 10