The effects of the lichen metabolites usnic acid and protolichesterinic acid on energy and lipid metabolism in cancer cells
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Um helmingur krabbameinslyfja sem komið hafa á markað síðustu áratugi á rætur sínar að rekja til náttúrunnar. Fléttur, sem eru sambýli sveppa og þörunga eða blábaktería, hafa verið notaðar í alþýðulækningum við ýmiss konar kvillum frá örófi alda. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að tvö hrein annars stigs efni, úsnínsýra (UA) og prótólichesterínsýra (PA) einangruð úr fléttunum hreindýramosa (Cladonia arbuscula) og fjallagrösum (Cetraria islandica) hafa margvísleg líffræðileg áhrif á frumur. UA er prótónuskutla og getur haft áhrif á himnuspennu í hvatberum og hindrað fjölgun og vöxt ýmissa krabbameinsfrumulína. PA er 5- og 12-lípoxygenasa hindri og hefur fjölgunarhemjandi áhrif á ýmsar gerðir krabbameinsfruma en lítil áhrif á eðlilegar frumur. Markmið þessa verkefnis var að kanna hvernig fjölgunarhemjandi áhrifum þessara efna er miðlað. Notaðar voru krabbameinsfrumulínur sem eru upprunnar úr brjósti, brisi og mergæxli ásamt eðlilegum bandvefsfrumum. Fjölbreyttum aðferðum var beitt við rannsóknir á áhrifum fléttuefnanna á ýmsa ferla og frumulíffæri í frumunum. \nNiðurstöðurnar gefa til kynna að UA skutli prótónum yfir himnur hvatbera og lýsósóma í brjóstakrabbameinsfrumum og trufli þannig sýrustigul sem leiðir til minnkunar í orkubúskap frumunnar. Fruman fær því ekki þá orku og efni sem hún þarf til að vaxa og fjölga sér. Einnig getur minnkun í orkubúskap haft áhrif á innanfrumu boðleiðir og hvatt til sjálfsáts. Meðhöndlun með UA leiðir til myndunar sjálfsátsbóla en ekki verður niðurbrot á innihaldsefnum frumunnar í lýsósómum líklega vegna truflunar á sýrustigli. Sjálfsátið nær því ekki að ganga alla leið. Líklegt er að fjölgunarhemjandi áhrif UA skýrist aðallega af prótónuskutlu eiginleikum þess. Rannsóknir á lípíð efnasambandinu PA gefa til kynna að vaxtarhemjandi áhrifum þess á bris- og mergæxlisfrumur sé ekki miðlað með hindrun á lípoxygenasa. Líklegt er að PA hafi áhrif snemma í stjórnun frumuhringsins og hindri mögulega beint DNA polýmerasa. PA hefur svipaða efnabyggingu og þekktur fitusýrusynþasa (FASN) hindri og niðurstöðurnar gefa til kynna að PA hindri FASN í brjóstakrabbameinsfrumum sem leiðir til minnkunar í umritun á HER2 viðtakanum og síðkominna áhrifa á vaxarboðleiðir í frumunni. Áhugavert er að sjá að verkunarmáti PA í krabbameinsfrumum virðist vera mun flóknari og fjölþættari en hjá UA og tengist að öllum líkindum efnafræðilegum eiginleikum fléttuefnisins að einhverju leyti. \nNiðurstöður samvirknitilrauna með fléttuefnin og þekkt krabbameinslyf gefa til kynna að samvirknin byggist bæði á sérkennum hvers krabbameins og mismunandi áhrifum þeirra á orku og efnaskipti í frumunni. Líklegt er að samvirknin geti einnig byggst á upptöku og dreifingu efnanna og áhrifum þeirra á boðleiðir í frumunni.
Source: Skemman
Author: Margrét Bessadóttir
Language: English
Subfield: Toxicology
Domain: Life Sciences
Keywords: usnic acid, protolichesterinic acid, lichen metabolites, cancer cell lines, energy metabolism, lipid metabolism, Cladonia arbuscula, Cetraria islandica, 5-lipoxygenase, 12-lipoxygenase, cell viability, apoptosis, cell cycle arrest, oxidative stress, reactive oxygen species, mitochondrial membrane potential
Open Access status: green
Funder: Háskóli Íslands
OpenAlex ID: W2267403904
