Work

Sjúkdómsmynd og meðferðarheldni ungs fólks með insúlínháða sykursýki eftir flutning yfir á göngudeild fyrir fullorðna

Year: 2009
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: ÁgripTilgangur: Þessi grein varpar ljósi á þá þætti sem þarf að huga betur að í meðferð fólks með sykursýki tegund eitt eftir flutning af göngudeild fyrir börn og unglinga yfir á göngudeild fullorðinna.Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru 56 ungmenni á aldrinum 20-30 ára sem mætt hafa í eftirlit á göngudeild sykursjúkra á Landspítala.Alls uppfylltu 72 þátttökuskilyrði en svarhlutfall var 78%.Niðurstöður: Meðal HbA1c-gildi voru á öllum tímabilum yfir meðferðarmarkmiðum American Diabetes Association sem er HbA1c undir 7%.Einungis 28,6% mættu til eftirlits fjórum sinnum eða oftar á 12 mánaða tímabili.Helmingur kvenna og 30% karla voru með fylgikvilla og var sjónumein algengast.Fjórðungur þátttakenda reykti sem er sama hlutfall og í almennu úrtaki Íslendinga á aldrinum 20-29 ára.Þeir sem reyktu mældust með fleiri einkenni kvíða og þunglyndis.Hátt hlutfall þátttakenda notaði geðlyf eða 19% sem er meira en tvisvar sinnum hærra en í almennu þýði.Ályktun: Huga þarf sérstaklega að því að meðal HbA1c-gildi voru yfir meðferðarmarkmiðum og því hversu hátt hlutfall þátttakenda var með fylgikvilla.Geðlyfjanotkun var mikil og þyrfti að skoða hvort tilefni sé til aukinnar samvinnu á milli D-G3 og sálfræðinga og/eða geðlækna.Jafnframt er ástæða til að kanna nýjar leiðir til að ná til ungs fólks með sjúkdóminn, einkum er varðar reykingar og meðferðarheldni líkt og mataræði og hreyfingu.
Author: Jakob Smári
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2275300436
FWCI:
Cites: 15
Cited by:
Related to: 10