Hugræn atferlismeðferð við langvinnu þunglyndi : samanburður á einstaklings- og hópmeðferð í endurhæfingu á geðsviði Reykjalundar
Year: 2009
Type: article
Abstract: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna árangur hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) við langvinnu þunglyndi hjá sjúklingum sem ekki hafa svarað hefðbundinni meðferð nægjanlega vel (treatment-resistant depression). Bornir voru saman þrír hópar sjúklinga á geðsviði Reykjalundar. Þátttakendur voru samtals 206 sjúklingar með langvinnt þunglyndi. Tveir meðferðarhópar inniliggjandi sjúklinga fengu annað hvort einstaklings HAM (n=68) eða hóp HAM (n=99). Samanburðarhópur (n=39) inniliggjandi sjúklinga fékk ekki HAM en var að öðru leyti í sömu endurhæfingu. Fyrstu niðurstöður sýna góðan árangur hjá öllum hópum en þátttakendur sem fengu einstaklings HAM náðu marktækt betri árangri en þeir sem fengu hóp HAM eða voru í samanburðarhópi. Vera má að hóparnir hafi verið of stórir (12- 14) eða sjúklingarnir með of alvarleg og fjölbreytt vandamál til að hópmeðferð sé nægjanleg. Kanna þarf árangur af minni hópum (7-8) og skoða hvaða sjúklingum gagnast hópar vel og hverjir þurfa einstaklingsmeðferð.
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2279454918
