Mikilvægi bættra aðferða við greiningu Alzheimer sjúkdómsins
Year: 2006
Type: article
Abstract: Alzheimer er taugahrörnunarsjúkdómur sem leggst á heila sjúklinga og leiðir til breytinga s.s á minni, hegðun og persónuleika. Í heila sjúklinga koma fram breytingar sem nefndar eru skellur (e. plaques) og flækjur (e. tangles) og er taugafrumudauði mikill þar sem þessar breytingar eru. Nokkrar stökkbreytingar hafa verið tengdar við Alzheimer sjúkdóminn en þær geta aðeins skýrt lítinn hluta Alzheimer tilfella. Núverandi lyfjameðferðir við Alzheimer sjúkdómnum geta hægt á eða minnkað einkenni sjúkdómsins tímabundið en geta hvorki stoppað né breytt framvindu sjúkdómsins. Greining á Alzheimer sjúkdómnum byggir mest á að greina einkenni sjúkdómsins en talið er að fyrstu stig hans byrji mörgum árum áður en einkenna verður vart. Þetta þýðir að sjúkdómurinn greinist ekki fyrr en verulegar skemmdir hafa orðið á heila sjúklinga vegna taugafrumudauða og skellumyndunar. Mikilvægi rannsókna og þróunar á betri aðferðum við greiningu Alzheimer sjúkdómsins sem geta greint sjúkdóminn á fyrstu stigum hans er því ótvírætt.
Author: Sigurveig Gunnarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Cellular and Molecular Neuroscience
Field: Neuroscience
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2280802132
