Work

Máninn líður, dauðinn ríður. Áhrif þjóðtrúar á íslenskar glæpasögur

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð hefur það hlutverk að skoða samtímaglæpasögur með tilliti til þjóðfræðilegs efnis og varpa ljósi á þjóðsagnayrkisefni sem eru notuð í íslenskum glæpasögum. Skoðaðar verða valdar glæpasögur eftir Arnald Indriðason, Óttar M. Norðfjörð, Stefán Mána, Yrsu Sigurðardóttur og Árna Þórarinsson. Einnig er ætlunin að sýna hvernig íslenskir glæpasagnarithöfundar nota þjóðsagnaefni í glæpasögum sínum, hvers vegna þeir velja þessa aðferð og hvernig vangaveltur um notkun þjóðsagnaefnis, sem hver höfundur tekur fyrir, eru heimfærðar í nútímaviðmið. Til þess þarf víðan grunn og þekkingu á þjóðfræði og helstu kenningum hennar, sem og á þjóðtrú og því hvernig samfélagsmyndin leit út í „gamla daga“. Þess vegna er mikilvægt að byrja á því að skoða, í grófum dráttum, hvaða hlutverki þjóðsögur gegndu í íslensku sveitasamfélagi fyrr á öldum. Með því að líta einnig á þjóðtrú Íslendinga nú á dögum skal sýnt hversu lifandi og áhrifamikil íslensk þjóðtrú er enn í samfélaginu og þannig skapa stærri yfirsýn yfir þjóðsagnayrkisefnið sem glæpasagnarithöfundar tileinka sér. Í sumum atriðum ritgerðarinnar er bent á mun á milli Íslands og meginlands Evrópu til að fá víðari sýn yfir rannsóknarefnið.
Source: Skemman
Author: Romina Werth
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2280935705
Cites: 3
Cited by:
Related to: 10