Work

Framskyggnar slembirannsóknir og þýðing þeirra fyrir framþróun læknisfræðinnar

Year: 2014
Type: article
Abstract: LÆKNAbLAÐIÐ hefur komið út síðan 1915 og í þessum 100.árgangi blaðsins eru greinar sem ritstjórnin hefur kallað eftir af því tilefni.Höfundar greinanna skrifa um ýmis málefni sem snerta lækna, félagsleg, söguleg og fræðileg.Þegar fyrsta tölublað Læknablaðsins kom út í janúar 1915 þurfti enn að bíða þess í aldarþriðjung að fyrsta framskyggna slembirannsóknin yrði gerð.Í öðru tölublaðinu er meðal annars að finna eftirfarandi málsgrein: "Við nálega öllum sjúkdómum er til aragrúi af lyfjum.Lyfjafræðin og lyflækningarnar má segja að séu enn á bernskuskeiði.Við vitum í rauninni svo lítið með vissu.Einn mælir með þessu lyfi, annar með hinu.Við verðum í hvert skipti að fara eftir bestu vitund.Hver verður að mynda sér skoðun, bæði eftir eigin reynslu og reynslu annarra." 1 Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og gagnreynd læknisfræðileg þekking byggð á traustum vísindalegum grunni hefur margfaldast að umfangi og þar vegur hlutdeild hinnar framskyggnu slembirannsóknar þungt.Segja má að eitt stærsta viðfangsefni lækna nú öld eftir að Læknablaðið hóf göngu sína sé að fylgjast með því gríðarlega magni af upplýsingum og rannsóknarniðurstöðum sem birtast og varða starfið beint.Áætlað hefur verið að um það bil tvær milljónir vísindagreina sem eiga heima í þekkingargrunni heilbrigðisþjónustunnar birtist á hverju ári og að niðurstöður 75 framskyggnra slembirannsókna og 11 kerfisbundinna yfirlitsrannsókna séu gefnar út á hverjum degi. 2 Í vísindaheiminum er lítill ágreiningur um að rannsókn Medical Research Council í Bretlandi á meðferð lungnaberkla með streptó-mýsíni 3 (mynd 1) sé fyrsta rannsóknin sem uppfylli öll skilmerki framskyggnrar slembirannsóknar, þótt hún eigi sér að sjálfsögðu undanfara eins og flest vísindaafrek mannsandans.4 Slembirannsókn á kíghóstabólusetningum hófst á undan berklarannsókninni en birtist þremur árum seinna.4 Berklarannsóknin hafði þá þegar haft mótandi áhrif á vísindalega hugsun í læknisfræði sem urðu síðar gríðarleg (mynd 2).Höfundarnir settu í fyrsta skipti fram hugmyndina um einstaklingsbundna slembun, það er að láta hendingu ráða í hvaða meðferðarhóp einstakir þátttakendur íhlutunarrannsóknar lentu.Þeir kynntu til sögunnar grundvallarhugmyndir sem hafa staðist tímans tönn, eins og upplýst samþykki, Framskyggnar slembirannsóknir og þýðing þeirra fyrir framþróun læknisfræðinnar Guðmundur Þorgeirsson prófessor í lyflæknisfræði, læknadeild Háskóla Íslands, lyflækningadeild Landspítala
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2282285158
FWCI:
Cites: 42
Cited by:
Related to: 10