Sjálfræði og fólk sem þarf mikinn stuðning í daglegu lífi : „við höfum alltaf gert þetta svona, það er þeim fyrir bestu“
Year: 2015
Type: article
Abstract: Markmið þeirrar rannsóknar sem hér er til umfjöllunar er að greina þá þætti sem helst hafa áhrif á sjálfræði fólks með þroskahömlun sem þarf mikinn stuðning í daglegu lífi. Um er að ræða viðkvæman hóp sem lítið hefur verið til umfjöllunar í rannsóknum og því verður auk þess sjónum beint að nokkrum af þeim fjölmörgu siðferðilegu áskorunum sem upp komu í rannsókninni. Byggt var á þátttökuathugunum á heimilum 24 einstaklinga á aldrinum 26–66 ára. Auk þess voru tekin rýnihópaviðtöl við 12 starfsmenn á heimilum fólksins. Í niðurstöðum kemur fram að starfsfólk á heimilum fólksins var í lykilhlutverki þegar kom að möguleikum þátttakenda til þess að þroska sjálfræði sitt. Viðhorf, þekking, stuðningur starfsfólks og skipulag á heimilum fólksins höfðu afgerandi áhrif. Á meðan einstaklingsmiðaður stuðningur efldi sjálfræði dró stuðningur sem miðaður var út frá heildinni úr möguleikum þátttakenda til sjálfræðis og ýtti undir stofnanamiðaða þjónustu byggða á stífum reglum, rútínu og vana. Stuðningur sem byggðist á virðingu fyrir gildi manneskjunnar, þekkingu á mannréttindum, lagalegum réttindum og félagslegum skilningi á fötlun jók hæfni starfsfólks til að styðja sjálfræði þátttakenda. Vanþekking, skortur á fagfólki og mannekla á mörgum heimilanna kom aftur á móti í veg fyrir að þátttakendur hefðu tækifæri til að þróa sjálfræði sitt. Auk þess hafði þekking starfsfólks og næmi á tjáskiptaleiðir fólksins mikil áhrif á möguleika þess til að tjá vilja sinn og þróa sjálfræði sitt. Af niðurstöðum rannsóknarinnar má álykta að bæði þurfi að auka stuðning verulega og breyta skipulagi á heimilum fólksins. Breitt bil virðist vera milli réttar fólksins til að taka sjálfstæðar ákvarðanir, sem birtist meðal annars í lögum og mannréttindasáttmálum, og þess veruleika sem við því blasir
Source: Skemman
Author: Guðrún Valgerður Stefánsdóttir
Language: Icelandic
Topic: Resilience and Mental Health
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2360874808
