Year: 2002
Type: article
Abstract: Inngangur: Vel þekkt er sambandið á milli lengdar skólagöngu og lífslíkna.Við höfum sýnt fram á þetta samband í Hóprannsókn Hjartaverndar.Það skýrðist aðeins að hluta til af mismunandi vægi þekktra áhættuþátta eftir skólagöngu.Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort ástundun líkamshreyfingar væri mismikil eftir lengd skólagöngu og hvort slíkur mismunur gæti skýrt frekar samband skólagöngu og dánartíðni.Efniviður og aðferðir: Rannsókn þessi var hluti af Hóprannsókn Hjartaverndar.Til grundvallar þessara niðurstaðna eru gögn 18.912 þátttakenda, skipt í fjóra hópa eftir lengd skólagöngu.Allir þátttakendur svöruðu spurningalista um eigið heilsufar og fleira, meðal annars ástundun líkamsæfinga.Reiknað var samband skólagöngu og ástundunar líkamsæfinga með aðhvarfsgreiningu (logistic regression).Reiknuð var út dánaráhætta með áhættulíkani Cox.Leiðrétt var fyrir aldri, skoðunarári, þekktum áhættuþáttum (blóðfitu, blóðþrýstingi, hæð, þyngd, reykingum, notkun háþrýstingslyfja og sykurþoli) og ástundun líkamsæfinga.Niðurstöður: Sýnt var fram á marktækt jákvætt samband á milli reglulegrar ástundunar líkamsæfinga og menntunar (p<0,001).Þegar leiðréttingu fyrir ástundun líkamsæfinga var bætt við leiðréttingu fyrir þekktum áhættuþáttum, aldri og skoðunarári minnkaði samband skólagöngu og heildardánartíðni hjá báðum kynjum (fyrir karla úr 23% mismuni á stystu og lengstu skólagöngu í 20%.Fyrir konur voru samsvarandi tölur 9% og 7%).Sama tilhneiging var til staðar varðandi kransæðadauða hjá körlum og að minna leyti hvað varðaði dauða af völdum krabbameins.Ályktanir: Mismunandi ástundun líkamsæfinga eftir lengd skólagöngu á hlut í að skýra samband dánartíðni og skólagöngu hvað varðar heildardánartíðni og kransæðadauða.Enn stendur þó eftir marktækur mismunur á dánartíðni eftir lengd skólagöngu sem er óútskýrður. InngangurMismunur á heilsufari eftir þjóðfélagsstöðu er löngu þekkt staðreynd og hefur verið rannsóknarefni margra vísindamanna.Nú síðustu ár hefur þessi mismunur verið á þann veg að þeir sem skipa lægri þjóðfélagshópa búa við verri heilsu og lakari lífslíkur (1-4).Sá mælikvarði sem einna mest hefur verið notaður til að mæla þjóðfélagsstöðu fólks í rannsóknum síðustu ára er lengd skólagöngu þess.Þessi mælikvarði á þjóðfélagsstöðu hefur endurtekið reynst hafa forspárgildi fyrir heilsu fólks og lífslíkur í þá veru að já
Author: Einar Þór
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2473705700
