„Enginn hefur kvartað“: Könnun á reynslu, þekkingu og viðbrögðum stjórnenda varðandi einelti á vinnustað
Year: 2016
Type: article
Abstract: Rannsókn sem þessi grein byggir á er tvíþætt, annars vegar rýni á fræðilegt efni og reglugerðir um einelti á vinnustað, og hins vegar viðtalskönnun með það að markmiði að kanna viðhorf stjórnenda til vinnustaðaeineltis. Lögð er áhersla á að fá fram þekkingu stjórnenda á forvörnum gegn einelti, og hvernig brugðist er við því á vinnustöðum, ásamt því að meta þörf stjórnenda fyrir stuðning og leiðbeiningar til að fyrirbyggja og takast á við einelti á vinnustað. Helstu niðurstöður benda til þess að það sé visst misræmi í skilgreiningu á einelti á milli viðmælenda sem voru stjórnendur, og því sem þolendur skilgreina sem einelti á vinnustað. Viðmælendur könnunarinnar, sem störfuðu á almenna vinnumarkaðinum, þekktu vel til viðmiða í reglugerðum sem falla undir vinnuverndarlöggjöfina. Þeir höfðu gert áhættumat starfa og forvarnaráætlun gegn einelti á sínum vinnustöðum. Þeir töldu að með skýru verklagi væri hægt að bregðast fyrr við ágreiningsmálum, auk þess sem starfsfólk léti fyrr vita ef það þekkti viðmiðin. Viðmælendur, sem störfuðu hjá sveitarfélagi, höfðu aftur á móti ekki gert slíkar áætlanir á sínum vinnustöðum. Samhljómur var um mikilvægi þess að hafa mannauðsráðgjafa á hliðarlínunni til að styðja við bakið á stjórnendum í erfiðum málum. Almenn fræðsla um samskipti og eineltismál var talin af því góða fyrir starfsfólk. Viðmælendurnir lögðu þó meiri áherslu á að fá hnitmiðað námskeið fyrir stjórnendur um einelti, orsakir og afleiðingar.
Source: Skemman
Authors: Svava Jónsdóttir, Inga Jóna Jónsdóttir
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: profit sharing, managerial attitudes
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2548751357
