Work

Use of antimicrobials and carriage of penicillin-resistant pneumococci in children : repeated cross-sectional studies covering 10 years [PhD Thesis]

Year: 2006
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Heimilislæknisfræði, Háskóla Íslands, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Sólvangur og Fjörður, Hafnarfirði, Íslandi.Tilgangur: Að athuga notkun sýklalyfja meðal forskólabarna á Íslandi og meta hugsanlegt samband slíkrar notkunar við beratíðni penicillín ónæmra pneumókokka í nefkoki þeirra.Efniviður og aðferðir: Upplýsingar voru fengnar hjá foreldrum og úr sjúkraskrám heilsugæslustöðva um sýklalyfjaávísanir 2.612 barna á aldrinum 1-6 ára sem bjuggu á mismunandi stöðum á landinu.Úr þessum hóp voru teknar nefkoksræktanir frá 2.486 börnum.Gerðar voru þrjár þversniðsrannsóknir á sömu svæðum á 10 ára tímabili (I.hluti 1993, II.hluti 1998 og III.hluti 2003).Þátttökuhlutfall var frá 75 til 88%.Einnig var unnið úr upplýsingum apóteka sömu svæða varðandi 22.132 ávísanir á sýklalyf til inntöku (utan spítala) fyrir alla aldurshópa árið 1993 og 15.153 ávísanir árið 1998.Aðal mælibreytur: Tíðni penicillín ónæmra pnemókokka í nefkoki og áhættuþættir berasmits, heildarnotkun sýklalyfja, notkun þeirra vegna bráðrar miðeyrnabólgu (acute otitis media), væntingar foreldra og notkun hljóðhimnuröra.Niðurstöður: • Sýklalyfjaávísunum heimilislækna til barna fækkaði um 1/3 á rannsóknartímabilinu. Munur var á ávísanavenjum lækna milli svæða, sérstaklega varðandi meðferð við bráðri miðeyrnabólgu.• Fylgni var á milli væntinga foreldra til sýklalyfjanotkunar og ávísana lækna á sýklalyf til barna eftir búsetu.• Yfir 30% barna á Íslandi fá hljóðhimnurör á fyrstu 6 aldursár unum.Á svæðum þar sem sýklalyfjanotkunin var mikil var meiri notkun á breiðvirkum sýklalyfjum borið saman við hin iv svæðin og notkun röra í hljóðhimnur fór vaxandi (upp í 44% allra barna).Á öðrum stöðum, þar sem sýklalyfjanotkunin hafði minnkað, var röranotkunin komin mest niður í 17%.• Sterkt samband var á milli sýklalyfjanokunar einstaklinga og tíðni penicillín ónæmra pneumókokka í nefkoki þeirra.• Fjölónæmir (ónæmir fyrir mörgum tegundum sýklalyfja) og jafnframt penicillín ónæmir pneumókokkar af sermisgerð 6B (með sömu svipgerð og Spain 6B -2 stofninn) fundust á svæðunum.Tíðni þeirra náði vissu hámarki en minnkaði síðan aftur eða að þeir hurfu með öllu á þessu 10 ára tímabili, bæði á svæðum þar sem sýklalyfjanotkunin var mikil og eins þar sem hún var lítil.Ályktanir: Sterkt samband ríkir á milli sýklalyfjanotkunar og tíðni penicillín ónæmra pneumókokka í nefkoki barna.Eftir sýklalyfjanotkun er barnið næmara fyrir utanaðkomandi smiti svo sem í leikskólum.Líklegt er að faraldsfræðileg dreifing nýrra ónæmra pneumókokkastofna skýri megin sveiflur í beratíðninni.Hugsanlega er samband á milli (of)notkunar sýklalyfja við bráðri miðeyrnabólgu og endurtekinna eyrnabólgusýkinga síðar meir og ísetningu hljóðhimnuröra.
Language: English
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2587417321
Cites: 150
Cited by: 7
Related to: 9