Work

Talídómíð, lyf hörmunga og hjálpræðis : yfirlitsgrein : síðari hluti: verkanir og verkunarhættir talídómíðs og notkun til lækninga

Year: 2003
Type: article
Abstract: ÁgripSaga talídómíðs fram til 1964 eða þar um bil er rakin í fyrri hluta þessa yfirlits.Í síðari hluta er fjallað um rannsóknir á verkunum og verkunarháttum talídómíðs og rannsóknum á gildi þess til lækninga fram á þennan dag.Árið 1964 fannst að talídómíð hafði óvænta verkun á húðhnútabólgu í holdsveiki (erythema nodosum leprosum).Skömmu síðar var og bent á hugsanlega gagnsemi talídómíðs við illkynja sjúkdóma.Vegna líkinda milli sameinda talídómíðs og gvanósíns er talið að sameindir talídómíðs skjóti sér inn í gvanósínríkar stýriraðir gena tiltekinna integrína, sem ráða æðamyndun og samhliða því myndun annarra vefja, einkum í útlimum, og hamli umritun þeirra.Þetta gæti skýrt fósturskemmandi verkun talídómíðs og að hluta, að minnsta kosti, verkun þess á illkynja sjúkdóma.Talídómíð hefur enn fremur marktæka hamlandi verkun á TNF␣ sem er miðsvæðis í verkun þess á bólgusjúkdóma á borð við húðhnútabólgu í holdsveiki og svæðisþarmabólgu (Crohnsjúkdóm).Talídómíð örvar jafnframt T lymfufrumur (T eitilfrumur) til þess að skipta sér og auka myndun á IL-2 og INF␥.Kann það ásamt öðru að skýra verkun þess á illkynja sjúkdóma.Talídómíð er nú ásamt dexametasóni kjörlyf við meðferð á mergæxli (multiple myeloma).Talídómíð og afleiður þess, sem eiga að hafa öflugri og sértækari verkun en það, eru nú reynd til hlítar í vel skipulögðum klínískum rannsóknum við meðferð á erfiðum illkynja sjúkdómum.Þetta eru sjúkdómar þar sem fárra eða engra annarra kosta er völ.Ferill talídómíðs er sérstakur: Frá því að vera lyf hörmunga er það nú 40 árum síðar stundum lyf hjálpræðis fyrir sárþjáða og langt leidda sjúklinga.Í fyrri hluta þessa yfirlits er fjallað um tilurð talídómíðs, sameindargerð og fyrsta feril og er í stórum dráttum saga talídómíðs til 1963 eða þar um bil (1).Í þessum hluta verður fjallað um verkanir og verkunarhætti talídómíðs og notkun þess til lækninga og framtíðarhorfur í því efni. Verkanir og verkunarhættir talídómíðsFósturskemmandi verkun talídómíðs og hömlun á myndun æða Sænskur vísindamaður, Jönsson að nafni, benti árið 1972 á líkindi sem eru milli sameinda talídómíðs og gvanósíns (2).Til upprifjunar skal nefnt að gvanósín
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2737335408
FWCI:
Cites: 37
Cited by:
Related to: 10