Matarumhverfi við íþróttaiðkun barna: rannsóknarverkefni
Year: 2017
Type: article
Study design: Observational Study
Abstract: Fjöldi íslenskra barna stundar æfingar hjá íþróttafélögum í frítíma sínum og mótast börnin \ná ýmsan hátt af umhverfi íþróttamiðstöðva og nágrennis. Markmið rannsóknarinnar var að \nrannsaka fæðuval 10–18 ára barna í tengslum við íþróttaæfingar þeirra og matarumhverfi \nhjá Ungmennafélaginu Aftureldingu (UMFA) í Mosfellsbæ. Bæjarfélagið Mosfellsbær hefur \nverið brautryðjandi sem heilsueflandi samfélag frá innleiðingu 2013. Leitast var við að \nvarpa ljósi á það hvernig börn og foreldrar upplifa matarumhverfi og fæðuframboð innan \níþróttamiðstöðvar félagsins, auk þess að kanna fæðuvenjur barna í tengslum við æfingar. \nLjóst má vera að umhverfið er mikilvægur áhrifaþáttur fæðuvals. Tilgáta verkefnisins var \ntvíþætt: A) Að fæðuvenjur í tengslum við íþróttaiðkun barnanna mótist að nokkru leyti af \nframboði í veitingasölunni og framboðið hindri það hugsanlega að hægt sé að velja hollan \nmat. B) Markaðssetning og auglýsingar um hvers kyns óhollustu séu áberandi í matarumhverfinu \nog börn jafnt sem foreldrar upplifi það sem hindrun. Rannsóknin tók til 221 barns, \n105 stúlkna og 116 drengja, í sjö greinum íþrótta hjá félaginu og foreldra þeirra (n=175). \nNotaðir voru tveir áþekkir spurningalistar og var annar ætlaður foreldrum en hinn börnum. \nJafnframt gerðu rannsakendur úttekt á matarumhverfi, þar með talið auglýsingum, og \nfæðuframboði innan íþróttamiðstöðvarinnar. \nSamkvæmt niðurstöðunum einkenndist fæðuval iðkenda, í tengslum við íþróttaiðkun, af \nhollum eða frekar hollum valkostum. Fáir iðkendur nýttu sér það reglulega að kaupa mat í \nveitingasölu íþróttahússins í tengslum við æfingar. Um þriðja hvert foreldri og fjórða hvert \nbarn vildu sjá breytingar á matarumhverfi félagsins. Foreldrar litu á mat að heiman, þjálfara \nog vini sem helstu hvata til að borða hollan mat í tengslum við æfingar. Helstu hvatar að \nmati barna voru framboð á mat að heiman og nægur tími. Að mati foreldra voru helstu \nhindranir fyrir því að borða hollan mat tímaskortur, verð, aðstaða og framboð í matsölu \nfélagsins. Orkuríkir en næringarsnauðir valkostir einkenndu framboð á matvöru og drykk í \nveitingasölu íþróttahússins. Auglýsingar um mat og drykk voru flestar í aðalsal félagsins. \nAf niðurstöðunum má álykta að mikilvægt sé að endurskoða bæði aðstöðu til að matast \nog framboð á mat og drykk í íþróttamiðstöðinni og mæta þannig óskum foreldra og barna. \nFæðutengdar auglýsingar voru mjög áberandi í húsnæði félagsins en í þessari rannsókn \nvar ekki metið hvort auglýsingarnar sem slíkar hefðu áhrif á fæðuval barnanna. Æskilegt \nværi að kanna hugsanleg áhrif betur, en um leið ætti það að vera stefna íþróttafélaga þar \nsem börn stunda reglulegar æfingar að draga úr áreiti með auglýsingum.
Source: Opin vísindi (Opin vísindi)
Language: Icelandic
Subfield: Nutrition and Dietetics
Field: Nursing
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W2791145613
