Work

Samvinnurannsóknir með fólki með þroskahömlun

Year: 2010
Type: article
Abstract: Tilgangur greinarinnar er að varpa ljósi á með hvaða hætti samvinnurannsóknir með fólki með þroskahömlun hafa þróast, hvernig fjórar konur upplifðu þátttöku í slíkri rannsókn og hvaða ávinning þær og höfundur höfðu af samstarfinu. Ennfremur er greint frá nokkrum af þeim fjölmörgu siðferðilegu álitamálum sem höfundur stóð frammi fyrir í rannsóknarvinnunni. Má nefna vináttutengsl og áhrif þeirra á þátttakendur, höfund og trúverðugleika rannsóknar. Rannsóknin sem hér er greint frá var unnin samkvæmt eigindlegri rannsóknarhefð og byggist á lífssögum átta einstaklinga með þroskahömlun sem fæddust á fyrri helmingi 20. aldar. Hluti af rannsóknarvinnunni fólst í að stofnaður var rannsóknarhópur sem í voru, auk höfundar, fjórar af lifssögupersónum rannsóknarinnar [1]. Í þessari grein er annars vegar byggt á samtölum sem fram fóru í rannsóknarhópnum á þriggja ára tímabili og hins vegar því samstarfi sem höfundur átti við sérhverja konu í hópnum frá upphafi rannsóknarvinnunar og til loka hennar. Í niðurstöðum kemur m.a. fram að ekki er hægt að greina að rannsóknarþátttakan hafi orðið til að breyta ytri aðstæðum kvennanna í samfélaginu. Aftur á móti höfðu þær ýmsan persónulegan ávinning af þátttökunni. Hefur hún reynst þeim árangursrík til að takast á við erfiða lífsreynslu, aukið þeim sjálfstraust og baráttuanda og síðast en ekki síst átt þátt í að auka víðsýni þeirra og sögulega vitund.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W295751079
FWCI: 1.268
Cites: 18
Cited by: 6
Related to: 10