Work

Advancements in site-directed incorporation of rigid spin-labels into nucleic acids

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Rafeindasegullitrófsgreiningu (e. Electron Paramagnetic Resonance, EPR) er reglubundið beitt í rannsóknum á byggingu og hreyfingu kjarnsýra til að fá upplýsingar um starfsemi þeirra og hlutverk. Innleiðing meðseglandi kjarna á ákveðinn stað í kjarnsýrum er nauðsynleg fyrir EPR mælingar og er það gert með aðferð sem kallast staðbundin spunamerking. Þessi doktorsritgerð lýsir betrumbótum á staðbundinni spunamerkingu á kjarnsýrum með notkun stífra spunamerkja. Fyrsti hluti ritgerðarinnar lýsir þróun á aðferð til verndunar nítroxíð stakeinda til að koma í veg fyrir afoxun þeirra þegar spunamerktar kjarnsýrur eru útbúnar með efnasmíði. Notast var við bensóylverndað hýdroxylamín til verndunar á nítroxíðinu. Þessi aðferð var notuð til að innleiða stífa spunamerkið Ç inn í DNA kjarnsýrur og lofar góðu sem almenn aðferð til þess að innleiða spunamerki í kjarnsýrur með fosfóramíðít efnasmíði. \nÍ öðrum hluta ritgerðarinnar er efnasmíði á spunamerkjunum EÇ og EÇm lýst, en bæði eru stöðug við afoxandi aðstæður. Þessi spunamerki eru ætluð til notkunar við innan-fruma EPR mælingar á kjarnsýrum. Bæði spunamerkin eru stíf, sem gerir mögulegt að fá nákvæmar upplýsingar um byggingu og hreyfingu kjarnsýra með EPR. EÇ var innleitt í DNA og EÇm í RNA með kjarnsýruefnasmíði. EÇm afoxaðist að hluta til á meðan á RNA smíðinni stóð en þá afoxun var unnt að koma í veg fyrir með fyrrnefndri bensóyl verndun nítroxíðsins. Sýnt var fram á að EÇ og EÇm breyttu ekki byggingu DNA og RNA tvíliða. \nÞriðji hluti ritgerðarinnar lýsir efnasmíðum á o-bensókvinón afleiðum af ísóindólíni og þéttingu þeirra með o-fenýlentvíamínum til að mynda ísóindólín-fenasín afleiður. Í kjölfarið voru þær oxaðar í fenasín-tví-N-oxíð nítroxíð og kannað hvort unnt væri að nota þær til spunamerkinga án samgildra tengja á tvístrendum DNA og RNA kjarnsýrum sem innihalda basalausar stöður. Ósetið fenasín-N,N-tvíoxíð tetrametýlísóindólín nítroxíð sýndi mikla sækni í basalausa stöðu í DNA á móti basanum C.
Language: English
Subfield: Spectroscopy
Field: Chemistry
Open Access status: green
OpenAlex ID: W3010641238
Cites: 216
Cited by:
Related to: 10