Dialectical Behavior Therapy Skills Training in School Settings: A Systematic Review - DBT STEPS-A
Year: 2020
Type: review
Study design: Systematic Review
Abstract: Ágrip \nÞessi rannsókn var kerfisbundin samantekt (e. systematic review) á námsefninu DAM - Leikni til lífs (DBT STEPS-A) og hafði það markmið að kanna hvaða rannsóknir hafa verið gerðar á því sem og meta árangur þeirra. Notast var við viðmiðunarreglur PRISMA. Námsefnið byggist á díalektískri atferlismeðferð og er ætlað að stuðla að bættri geðheilsu ungmenna með því að kenna þeim gagnlega félags- og tilfinningafærni, í skólum. Námsefnið var gefið út árið 2016 í Bandaríkjunum og er eftir Mazza og félaga. Notast var við þrjá gagnagrunna sem og inntöku- og úttökuskilyrði en það skilaði fimm rannsóknum frá Íslandi, Írlandi og Wales. Námsefnið var lagað betur að aðstæðum hverju sinni í öllum rannsóknunum. Í heild sýndu niðurstöður þessara rannsókna að námsefnið getur stuðlað að bættri geðheilsu ungmenna, sérstaklega tilfinningastjórn, og að hægt sé að aðlaga námsefnið með jákvæðum árangri. Farið er yfir takmarkanir rannsóknanna og tillögur að úrbótum í framtíðarrannsóknum á þessu efni.
Source: Skemman
Language: English
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W3033858367
