Fishing for Sustainability: Essays on the Economic, Social and Biological Outcomes of Fisheries Policy in the Faroe Islands
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Flestir fiskistofnar heims eru nýttir að fullu eða ofveiddir. Ofnýting hefur í för með sér slæmar vistfræðilegar, hagrænar og félagslegar afleiðingar. Minna er hægt að veiða úr ofveiddum stofnum og hætta getur verið á hruni þeirra. Og af því að þeir gefa minna af sér eru veiðarnar ekki jafn arðbærar og geta jafnvel verið reknar með tapi. Lélegt ástand stofnanna hefur áhrif á þá sem nýta auðlindina og það getur hoggið nærri brothættum sjávarbyggðum. \n \nÍ þessari doktorsritgerð er sjónum beint að Færeyjum. Íbúar Færeyja eru um 50 þúsund og þeir eiga mikið undir sjávarútvegi. Veiðar og vinnsla standa undir 24% af vergri landsframleiðslu (VLF) og útflutningur sjávarafurða svaraði til 52% af útflutningi ársins 2017. Um 10% fólks vinnur við sjávarútveg, þar af um 1.500 við veiðar og um 1.200 við vinnslu. En þrátt fyrir mikilvægi sjávarútvegs eru helstu fiskistofanar við Færeyjar ofnýttir. \n \nÍ fyrstu grein þessarar ritgerðar er fjallað um stjórn fiskveiða í Færeyjum og hvernig hún hefur þróast á árunum 1948-2018. Færeyingar hafa reynt ýmis konar fiskveiðistjórnarkerfi; opinn aðgang, skilyrtan aðgang, leyfiskerfi og framseljanlegar aflaheimildir, en frá árinu 1996 hefur verið beitt sóknarstýringu með dagatakmörkunum. Í greininni er bent á að stjórnun heimaflotans, sem veiðir úr stofnum við Færeyjar, hefur ekki verið nægjanlega aðhaldssöm og fyrir vikið hafa helstu fiskistofnar verið ofnýttir. Veiðarnar hafa jafnframt að mestu verið óarðbærar. Þessu er öfugt farið með stjórn úthafsflotans, sem veiðir á fjarlægum miðum, og uppsjávarveiðiskipa, en þeim hefur að mestu verið stjórnað með kvótakerfi. Þar hefur hagnaður verið meiri og viðvarandi. \n \nÍ annarri greininni er borinn saman líffræðilegur, hagrænn og félagslegur árangur af ólíkri stjórn veiða heimaflotans, uppsjávarflotans og úthafsflotans 1985-2018. Sýnt er fram á að vegna þess að fiskistofnar við Færeyjar voru ofnýttir og heimaflotinn of stór, hefur aldrei náð að myndast nein auðlindarentu í þeim veiðum. Í uppsjávarveiðum hefur á hinn bóginn orðið til allgóð auðlindarenta. Laun sjómanna á skipum og bátum í heimaflotanum hafa einnig verið lægri en á öðrum skipum og sum ár jafnvel lægri en meðallaun í Færeyjum. Fjárhagslegur stuðningur hins opinbera hefur aukið á vandann með því að viðhalda of stórum heimaflota og þannig ýtt undir ofnýtingu fiskistofna við eyjarnar. \n \nÍ þriðju greininni eru beitt aðferð sem kennd er við frammistöðumælikvarða (Fishery Performance Indicators, FPI) til að gaumgæfa frekar þróun fiskveiða í Færeyjum. Allar fiskveiðarnar sem samanburðurinn nær til fá góða einkunn á samfélagslegum skala, en togarar i heimaflotanum fá þó lakari einkunn en úthafsflotinn og uppsjávarveiðiflotinn. Heimatogararnir standa sig einnig verst í vistfræðilegu tilliti. Þótt góð auðlindarenta hafa myndast í uppsjávarveiðum stendur sá floti að baki hinum flotunum tveimur í hagrænum skilningi, einkum vegna þeirrar miklu óvissu sem fylgir stórum sveiflum í heildarafla. Greiningin sýnir einnig fram á að nýtingarréttur togskipa í heimaflotanum er veikur miðað við það sem gerist og gengur almennt í fiskveiðum í iðnvæddum löndum. \n \nÍ fjórðu og síðustu greininni er sagt frá þeim breytingum á stjórn fiskveiða í Færeyjum sem kynntar voru árið 2018, en með þeim var ætlunin að bæta líffræðilega og hagræna sjálfbærni veiðanna. Bent er á hvað gæti staðið í vegi fyrir því að þau áform gengu eftir, ekki síst þá staðreynd að umbæturnar áttu aðeins að ná til hluta heimaflotans. Því væri hætta á að breytingarnar myndu ekki hafa tilætluð áhrif og áfram yrði því bið á að hinir mikilvægu stofnar þorsks og ýsu í færeyskri lögsögu næðu að rétta úr kútnum. \n \nRitgerðin dregur fram að veiðum færeyska heimaflotans hefur ekki verið stjórnað á heppilegasta máta sem hefur haft vond líffræðileg, hagræn og félagsleg áhrif. Reynslan af stjórn veiða úthafsflotans og uppsjávarveiðiflotans sýnir glögglega hversu mikið sú óstjórn hefur kostað. Ritgerðin sýnir einnig að sá auður sem sjávarútvegur hefur skapað hefur átt þátt í að lyfta lífskjörum í Færeyjum. En þrátt fyrir mikilvægi sjávarútvegs í þjóðarbúskapnum og nauðsyn þess að stjórna fiskveiðum með skynsamlegum hætti hefur Færeyingum ekki lánast að gera sér meira úr auðlind sinni. Þær breytingar á stjórn fiskveiða, sem átti að hrinda í framkvæmd 2018, gengu heldur ekki nægjanlega langt. Þess vegna er mikilvægt að kannað verði hvernig hægt sé að ná samstöðu um stjórn veiða heimaflotans sem tryggi að til framtíðar verði veiðum á heimaslóð stjórnað með sjálfbærni að leiðarljósi.
Source: Opin vísindi (Opin vísindi)
Author: Rannvá Danielsen
Language: English
Subfield: Aquatic Science
Domain: Life Sciences
SDG: Life below water
Open Access status: green
OpenAlex ID: W3094264869
