Work

Hydrological modeling : artificial neural networks and parameter calibration

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Vatnsfræðilíkön eru mikilvægir þættir í vatns- og umhverfisauðlindastjórnun. Kvörðun líkana er ein af þeim áskorunum sem vatnsfræðilíkön standa frammi fyrir. Árangursrík kvörðun líkana eykur nákvæmni niðurstaðna þeirra. Í þessari ritgerð eru bornar saman tvær kvörðunaraðferðir Hermihörðnun og Monte Carlo, til að kvarða afrennslislíkanið HBV-light. Vatnasviðið sem notast var við í ritgerðinni var Rhone í Sviss. Tauganetslíkan var smíðað til að líkja eftir rennsli. Niðurstöðurnar voru bornar saman við niðurstöðurnar sem fengnar voru með HBV-light líkaninu. Samanburður á kvörðunaraðferðum sýndi að Monte Carlo aðferðin með 100 bestu keyrslunum skilaði betri niðurstöðum en hermihröðnunar aðferðin. Hermihörðnunar aðferðin sýndi betri árangur þegar 10 bestu keyrslurnar voru notaðar. Hermihörðnunar aðferðin þarf fleiri keyrslur til að veita betri árangur og lægri staðalfrávik. Hermihörðnunar aðferðin var efnileg og frekari vinna væri áhugaverð. Tauganetið skilaði betri árangri miðað við HBV-light líkanið í sumum tilvikum og með minni hlutfallslegri villu. Frekari vinna gæti falið í sér að nota endurkvæmt tauganet til að líkja betur eftir niðurstöðum HBV-light líkansins.
Source: Skemman
Language: English
Open Access status: green
OpenAlex ID: W3129181667
Cites: 38
Cited by:
Related to: 10