Suicidal behavior: The role of traumatic life events and macroeconomic fluctuations
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur og markmið: Meirihluti einstaklinga upplifir streitu og áföll á \nævinni. Streita og áföll hafa í för með sér aukna áhættu á geðröskunum sem \ngeta leitt til alvarlegri útkoma, eins og aukinnar áhættu á sjálfsvígshugsum \nsjálfsskaða, sjálfsvígstilraunum og sjálfsvígum. Markmið þessarar rannsóknar \nvar að kanna tengsl milli ýmissa persónulegra áfalla á lífsleiðinni og \nsjálfsskaðandi hegðunar meðal karla og kvenna (rannsókn I). Enn fremur var \nmarkmiðið að skoða áhrif samfélagslegs áfalls, nánar tiltekið áhrif \nefnahagshrunsins á Íslandi árið 2008, á sjálfsskaðandi hegðun og sjálfsvíg \n(rannsókn II og III). \n \nEfniviður og aðferðir: Rannsókn I byggði á spurningalista úr forrannsókn \nrannsóknarinnar Heilsusögu Íslendinga (N=1398). Tíðni áfalla voru metin \nmeð Life Stressor Checklist-Revised og skilgreiningarviðmið samkvæmt \nDSM-5 notuð til að skilgreina tegundir áfalla. Tíðni sjálfsskaðandi hegðunar \n(sjálfsvígshugsun, sjálfsskaði eða sjálfsvígstilraun) var metin og Poisson \naðhvarfsgreining notuð til að meta tengsl milli áfalla og sjálfsvígshegðunar. Í \nrannsóknum II og III voru notaðar upplýsingar um komur á bráðamóttöku og \ninnlagnir á Landspítala vegna sjálfsvígshegðunar (ICD-10: X60-84, X40-49, \nY10-34, T36-50, Z91.5) á árunum 2003-2012, auk upplýsinga frá \nDánarmeinskrá Embættis Landlæknis um sjálfsvíg á árunum 2002-2014 \n(ICD-10: X60-84 og Y 84.0). Þá voru upplýsingar um efnahagsvísa á \nlandsvísu fengnar frá Hagstofu Íslands til að meta möguleg áhrif þeirra á \nsjálfsvígshegðun. Efnahagshrunið var skilgreint út frá dagsetningunni \n6.október 2008. Poisson aðhvarfsgreining var notuð til að meta breytingu á \ntíðni sjálfsvígshegðunar eftir efnahagshrun samanborið við árin fyrir hrun. \n \nNiðurstöður: Alls höfðu 76% þátttakenda upplifað einhvers konar áfall á \nlífsleiðinni í rannsókn I og 16% karla og 11% kvenna höfðu sögu um \nsjálfsskaðandi hegðun. Þátttakendur sem höfðu orðið fyrir persónulegum \náföllum voru líklegri til að hafa skaðað sig á lífsleiðinni (RR 2.05, 95% CI \n1.21-3.75). Þessi tengsl voru sérstaklega sterk meðal karla (RR 3.14, 95% CI \n1.25-7.89) en ekki tölfræðilega marktæk meðal kvenna (RR 1.45, 95% CI \n0.70-2.99). Þegar áföll sem fólu í sér ofbeldi voru metin, fundust tengsl við \nsjálfsskaðandi hegðun meðal kvenna og karla, (RR 2.97; 95% CI 1.67-5.67), \nog þegar áföll sem fólu ekki í sér ofbeldi voru metin, fundust tengsl við \nsjálfsskaðandi hegðun meðal karla (RR 3.27, 95% CI 1.30-8.25), en ekki \nkvenna. Rannsóknir II og III sýndu enga breytingu á sjálfsskaðandi hegðun \niv \n(RR 0.95, 95% CI 0.90–1.01) eða sjálfsvígum (RR 0.96, 95% CI 0.67- 1.38) \neftir efnahagshrun samanborið við fyrir efnahaghrun. Hins vegar sýndu \nniðurstöður að komur karla vegna sjálfsskaða á Landspítala hefðu náð \nhápunkti stuttu fyrir efnahagshrun, í hápunkti góðæris. Tengsl voru milli \nhækkunar á atvinnuleysi og viðskiptajöfnuði eftir efnahagshrun og fækkun \nkoma á Landspítala vegna sjálfsskaðandi hegðunar. Þótt heildaraukning hafi \nekki orðið á sjálfsvígum eftir efnahagshrun, sýndi nánari greining að tíðni á \nsjálfsvígum ógiftra karla (RR 1.31, 95% CI 1.03-1.67) og karla eldri en 65 ára \n(RR 2.31, 95% CI 1.24-4.57) jókst. Þessi aukning átti sér þó stað þegar liðið \nvar frá efnahagshruninu og var aukningin hjá eldri körlum tengd aukningu \nvergrar landsframleiðslu og auknum viðskiptajöfnuði. \nÁlyktun: Niðurstöður styðja fyrri rannsóknir sem sýnt hafa að áföll geti aukið \nhættu á sjálfsskaðandi hegðun og gefa auk þess til kynna að áhrifin geti verið \nsterkari fyrir karla en konur. Niðurstöðurnar gefa einnig til kynna að með \nbatnandi efnahag, og aukinni vergri landsframleiðslu, geti áhætta á \nsjálfsskaðandi hegðun og sjálfvígum aukist, sérstaklega meðal karla. Ólíkt því \nsem sést hefur í kjölfar efnahagshruna af þeirri stærðargráðu sem Íslendingar \nupplifðu 2008, þá jókst ekki heildartíðni sjálfsskaðandi hegðunar og sjálfsvíga \ní kjölfar hrunsins. Hugsanlega hefur félagsleg samheldni og seigla í \nsamfélaginu auk aðgerðaráætlana í sterku velferðarkerfi á Íslandi haft áhrif á \nþær niðurstöður. \n \nLykilorð: Áföll, efnhagssveiflur, sjálfsskaði, sjálfsvígstilraunir, sjálfsvíg.
Source: Opin vísindi (Opin vísindi)
Author: Hildur Guðný Ásgeirsdóttir
Language: English
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W3154807599
