“Hybrid warfare” as a strategic tool for estimating changes in Russia’s foreign policy
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Þessi meistararitgerð rannsakar innlimun Krímskagans árið 2014 og hið óyfirlýsta stríð í Austur-Úkraínu, sem hefur vakið miklar deilur innan alþjóðasamfélagsins um blendings-hernað (e. hybrid warfare), og hvort að slíkur hernaðar sé í raun nýtt verkfæri í öryggisstefnu Rússneska sambandsríkisins (RS). Markmið rannsóknarinnar voru tvíþætt. Í fyrsta lagi að meta hvort aðgerðir Rússlands á alþjóðavísu síðastliðna áratugi einkennist af blendings-hernaði. Í öðru lagi að öðlast skilning á því hvað olli breytingum á utanlandsstefnu Rússlands eftir Kalda stríðið, og eðli þessara breytinga hvað varðar árásarhneigð og nýjar aðferðir í hernaði. Greiningin studdist við tvær tilviksrannsóknir — netárásina á Eistland árið 2007 og krísuna í Úkraínu árið 2014. Úkraínu tilvikið var valið því það hefur vakið athygli á notkun hugtaksins blendings-hernaður á meðan netárásin gegn Eistlandi var greind sem viðbótar heimild til að kanna hvort mynstur sé að finna í háttsemi RS á alþjóðavísu. Greiningin leiðir í ljós að flestir þættir, sem einkenna tilvikin tvö, geta talist til blendings-hernaðar. Nánari athugun á þróun utanríkisstefnu RS bendir þó til þess að blendings-hernaður sé líkur hefðbundnum aðferðum sovéskrar stefnu á tímum Kalda stríðsins. Niðurstaða rannsóknarinnar er að með því að leggja áherslu á að rannsaka „hví“ í staðinn fyrir „hvernig“ má öðlast skýrari mynd af blendings-hernaði og nálgunum á hvernig draga skal úr hættu á slíkum aðferðum og koma í veg fyrir þær.
Source: Skemman
Author: Iuliana Kalenikova
Institution: University of Iceland
Language: English
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W3169965115
