Is an eight-week education program on sleep, breathing and self-empowerment an effective way to improve sleep habits and well-being among adolescents?
Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árangur námskeiðs um fræðslu á mikilvægi svefns og hver áhrif þess væru á svefnvenjur meðal unglinga í 9. bekk. Áhersla var lögð á öndunartækni, sjálfstyrkingu og fræðslu um svefn. Markmiðið var einnig að kanna hvort unglingum þætti öndunaræfingarnar sem kenndar voru gagnlegar og hvort þeir væru líklegir til að nota þær eftir námskeiðið. Þátttakendur voru 22 talsins, á aldrinum 14-15 ára og voru þeir alllir í sama 9. bekk í grunnskóla. Í upphafi námskeiðs svöruðu þátttakendur spurningalista um svefnvenjur, svefngæði og líðan. Pittsburgh Quality Sleep Index (PQSI) var notaður til að mæla svefngæði unglinga fyrir og eftir námskeiðið. Eftir námskeiðið svöruðu þátttakendur einnig spurningalista um reynslu sína af þátttöku á námskeiðinu. Marktækur munur fannst á því hversu mikilvægan þátttakendur töldu góðan nætursvefn vera. Niðurstöður leiddu í ljós að þátttakendur voru að sofa 7,30 tíma að meðaltali á virkum dögum í upphafi námskeiðs og 7,64 klukkustundir í eftirfylgni. Um helgar var meðal svefntími 9,09 klukkustundir í upphafi og 9,48 klukkustundir í eftirfylgni. Niðustöður sýndu einnig fram á aukina þekkingu þátttakenda á svefni í eftirfylgni. Einnig sýndu niðurstöður fram á að meðaltali fannst þátttakendum öndunaræfingarnar gagnlegar og greindu frá því að þeir væru líkleg til þess að nota þær í framtíðinni.
Source: Skemman
Author: Helga Hrund Halldórsdóttir
Institution: Reykjavík University
Language: English
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W3196028350
