Work

Orsakir ofvirkniröskunar - yfirlitsgrein

Year: 2005
Type: article
Abstract: ÁgripOfvirkniröskun eða athyglisbrestur með ofvirkni kemur fram á barnsaldri og hefur algengi verið metið um 7%.Heilkennið einkennist af einbeitingarerfiðleikum, hreyfiofvirkni og hvatvísi.Einkennin geta haldist fram á fullorðinsár og er algengi hjá fullorðnum talið um 4,5%.Orsakir ofvirkniröskunar eru margþættar en áætlað er að erfðir skýri heilkennið í 70-95% tilfella.Erfðafræðilegur breytileiki í ýmsum boðefnakerfum í heila er talinn hafa mikla þýðingu og hefur dópamínerga kerfið mest verið rannsakað.Þar hafa erfðarannsóknir sýnt fylgni ofvirkniröskunar við erfðabreytileika í genunum DR4, DR5 og DAT-1.Hlutverk annarra boðefnakerfa í ofvirkniröskun eru óljósari, svo sem hlutverk noradrenalíns og serótóníns.Vísbendingar eru um að reykingar, áfengisneysla á meðgöngu, lág fæðingarþyngd og fæðingaráverkar eigi hlut að máli varðandi orsakir ofvirkniröskunar en frekari rannsókna er þörf.Fleiri þættir hafa verið nefndir til sögunnar, svo sem blýeitrun og heilaskaði.Eins og þekkingin stendur í dag eru erfðir sá orsakaþáttur sem hefur mest vægi.Í greininni er farið yfir stöðu rannsókna á orsökum ofvirkniröskunar. InngangurOfvirkniröskun eða athyglisbrestur með ofvirkni er klínískt heilkenni á sviði hreyfiofvirkni, hvatvísi og athyglisbrests þar sem einkenni eru í ósamræmi við aldur og þroska (1).Einkennin eru komin fram við 6-7 ára aldur og þurfa að koma fram í fleiri en einum aðstæðum, til dæmis bæði á heimili og í skóla (2).Ofvirkniröskun er algeng hjá börnum, niðurstöður erlendrar rannsóknar þar sem teknar voru saman 97 rannsóknir á tíðni athyglisbrests með ofvirkni sýndu algengi um 7% samkvæmt DSM-IV greiningarkerfinu (3).Íslensk athugun fann aðeins lægra hlutfall meðal íslenskra skólabarna (4).Niðurstöður rannsókna eru nokkuð breytilegar vegna mismunandi þýðis, rannsóknaraðferða og hvort farið er eftir greiningarkerfinu ICD-10 eða DSM-IV.Þannig hefur algengi verið metið allt frá 1,5 til 17,8% (7, 8).Algengi er hærra hjá drengjum og greinast um það bil þrír drengir á móti hverri stúlku með ofvirkniröskun (5).Einkenni minnka gjarnan með aldri en talið er að allt frá 22-85% unglinga sem höfðu ofvirkniröskun á barnsaldri uppfylli áfram greiningarskilmerki (6, 7).Algengi ofvirkniröskunar er talið vera um 4,5% meðal fullorðinna (9).Ofvirkniröskun getur haft margbreytileg einkenni.Flest bendir til fjölgena orsakar sem gæti valdið röskun á fleiri boðefnakerfum samtímis, en það gæti meðal annars skýrt að í sumum tilfellum er þörf á fjöllyfjameðferð til að meðhöndla einkenni heilkennisins (10).Fylgiraskanir ofvirkniröskunar eru til dæmis hegðunarröskun, mótþróaþrjóskuröskun, kvíðaraskanir, kækjaraskanir (11), þunglyndi og sértækar þroskaraskanir eins og námserfiðleikar (12).Algengi fylgiraskana er frá 20% fyrir námsraskanir til 35% fyrir hegðunarraskanir (1).Sterk tengsl fylgiraskana við ofvirkniröskun styðja einnig þá tilgátu að um fjölgena orsök sé að ræða (3, 13).Meðferð ofvirkniröskunar er margþætt og verður hér ekki farið sérstaklega í meðferð einkenna.Þó hafa áhrif lyfjameðferðar eins og til dæmis metýlfenidats á ofvirknieinkenni gefið vísbendingar um hvaða boðefnakerfi í heila eigi hlut að máli varðandi meingerð.Hér verður tæpt á ýmsum orsakaþáttum sem nefndir hafa til sögunnar varðandi ofvirkniröskun samkvæmt erlendum rannsóknum, en síðar verða birtar niðurstöður úr lýsandi rannsókn um ofvirkniröskun á Íslandi.Erfðir.Margt bendir til þess að erfðir séu aðalorsakaþáttur ofvirkniröskunar og skýra þær 70-95% tilfella samkvæmt rannsóknum (10, 14).
Language: Latin
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W47236392
FWCI:
Cites: 56
Cited by: 2
Related to: 10