Afturskyggn rannsókn á lyfja- og fíkniefnaeitrunum sem komu til meðferðar á bráðamóttökum Landspítala árið 2018
Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að kanna umfang lyfja- og fíkniefnaeitrana á bráðamóttökum Landspítala. Einnig var kannað hvaða sjúklingatengdu þættir tengdust lyfja- og fíkniefnaeitrunum, metið hvaða lyfjaflokkar og/eða fíkniefni ollu eitrunum og skoða hvaða breytur höfðu fylgni við lyfja- og fíkniefnaeitranir. \nAðferðir: Rannsóknarsnið var afturskyggn lýsandi gagnarannsókn þar sem upplýsingum var safnað úr gagnagrunni Landspítala. Notast var við ákveðnar skráningar komuástæða/ICPC-2 til að finna sjúklinga með eitranir sem höfðu komið til meðferðar á bráðamóttökum Landspítala frá 1. janúar til 31. desember árið 2018. Ákvörðunartré var hannað af rannsakendum til að meta hvort um eitrun hefði verið að ræða hjá þeim sjúklingum. Ef sjúklingur var talinn hafa orðið fyrir lyfja- og/eða fíkniefnaeitrun í sjúkraskrám var hann tekinn inn í rannsóknina. \nNiðurstöður: Á rannsóknartímabilinu voru 757 komur á bráðamóttökur Landspítala vegna lyfja- og fíkniefnaeitrana, sem samsvarar tíðninni 2,15 eitranir á hverja 1000 íbúa á landinu. Karlar voru hlutfallslega fleiri, eða 54%, og 46% konur. Aldursbil sjúklinga var frá 1 árs upp í 93 ára, en 62% sjúklinga voru yngri en 30 ára. Algengustu ástæður eitrana voru vegna viljandi eitrana af völdum misnotkunar (52%) og sjálfsvígstilrauna (39%). Óhappaeitranir (6%) voru flestar í yngsta aldurshópnum, 10 ára og yngri. Eitranir skiptust niður í 62% lyfjaeitranir, 23% fíkniefnaeitranir og 13% eitranir vegna lyf og fíkniefna. Meirihluti sjúklinga, eða 61%, var útskrifaður af bráðamóttökum, 30% sjúklinga voru lögð inn á aðrar deildir, þar af var 3% sjúklinga lögð inn á gjörgæslu, enginn lést og 9% sjúklinga voru með önnur afdrif. \nÁlyktanir: Tíðni eitrana á bráðamóttökum Landspítala samræmist fyrri rannsóknum. Hún var hæst hjá ungu fólki á aldrinum 20-29 ára og hærri hjá körlum en konum. Lyfjaeitranir vegna sjálfsvígstilrauna voru algengari meðal kvenna en fíkniefnaeitranir og blandaðar eitranir vegna misnotkunar voru algengari meðal karla.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Emergency Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979763268
