Áhrif sérhæfðra æfinga á stöðu hnés og bols í gabbhreyfingu, uppstökki og lendingu hjá handknattleikskonum á Íslandi
Year: 2010
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Slit á fremra krossbandi hnés eru 4-6 sinnum algengari hjá konum í \nhandbolta en körlum. Algengt er að íþróttamenn slíti krossbönd í gabbhreyfingum, \nstefnubreytingum og við lendingar eftir stökk. \nTilgangur rannsóknar: Athuga áhrif sérhæfðra æfinga í upphitun á stöðu hnés og \nbols í gabbreyfingum og stökkum sem og styrk í þeim vöðvum sem æfingarnar \nbeindust að. Með þessum æfingum væru vöðvar betur undirbúnir og þátttakendur \ntilbúnari að bregðast við óæskilegum hreyfingum. \nAðferðir: Þátttakendur voru handboltakonur úr 4 efstu liðum úrvalsdeildar á Íslandi. \n51 þátttakandi tók þátt í fyrstu mælingu en 29 þátttakendur voru notaðir við úrvinnslu. \nAllir þátttakendur voru prófaðir fyrir íhlutun með styrktarmælingum á fráfærslu og \nútsnúningi í mjaðmarlið og hliðarbeygju bols. Síðan framkvæmdu þátttakendur \ngabbhreyfingar, uppstökk af báðum fótum eftir lendingu og lendingu á öðrum fæti fyrir \nframan háhraðamyndavél. Myndbönd voru greind í hreyfigreiningarforriti frá Kine þar \nsem mældur var valgus hnés, bolsveigja og hlutfall bils milli hnjáa og ökkla. Liðunum \nvar síðan slembiraðað og annar hópurinn látin gera æfingar í upphitun fyrir hverja \næfingu í 8 vikur. Eftir íhlutun voru þátttakendur prófaðir aftur með sömu aðferðum og \nhóparnir bornir saman. \nNiðurstöður: Rannsóknarhópur bætti sig umfram viðmiðunarhóp í; valgus í hné fyrir \nuppstökki af báðum fótum (p=0,001), í hlutfalli bils á milli hnjáa og ökkla fyrir \nuppstökk af báðum fótum (p=0,001) og í lendingu á öðrum fæti (p=0,016). Breyting \nkom fram hjá báðum hópum yfir tíma í; valgus í gabbhreyfingum (p<0,001), \nbolsveigju í gabbhreyfingum (p=0,001), styrk í hliðarbeygju (p=0,007) og styrk í \nútsnúning í mjaðmarlið (p=0,002). \nÁlyktun: Sérhæfðar upphitunaræfingar hafa áhrif á hreyfingar handboltakvenna eftir \n8 vikna íhlutun þrátt fyrir að styrktaraukning hafi ekki verið marktæk á milli hópa, en \nbáðir hóparnir bættu styrk sinn yfir tíma. \nÁvinningur rannsóknar: Styrktaræfingar fyrir vöðva sem hafa áhrif á stjórn lærleggs \nmá nota í þjálfun til þess að minnka valgus í hnjám íþróttamanna og þar með minnka \nhættu á meiðslum.
Source: Skemman
Authors: Einar Óli Þorvarðarson 1985, Haukur Már Sveinsson 1984, Sigurður Sölvi Svavarsson 1983
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Orthopedics and Sports Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Zero hunger
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979782572
