Áhrif samfélagsmiðla á sjálfsmynd unglinga
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Ýmsar rannsóknir hafa verið gerðar síðastliðin ár í tengslum við samfélagsmiðlanotkun og mismunandi áhrif þeirra á unglinga. Tilgangur þessarar ritgerðar var að varpa ljósi á þau áhrif sem samfélagsmiðlanotkun kann að hafa á sjálfsmynd barna og unglinga. Við framkvæmd var notast við spurningar úr gagnasafni frá EU Kids Online um netnotkun barna þar sem þátttakendur voru börn á aldursbilinu 9-17 ára. Þær þrjár spurningar sem okkur fannst geta verið sem allra næst því að mæla megin hugtökin í tengslum við áhrif samfélagsmiðla á sjálfsmynd urðu fyrir valinu en þau hugtök voru: samfélagsmiðlanotkun, neteinelti og sjálfsmynd. Til að svara spurningunni hvort samfélagsmiðlanotkun hafi áhrif á sjálfsmynd var gerð tvíkosta aðhvarfsgreining. Líkanið mat áhrif samfélagsmiðlanotkunar á líkurnar á að börn séu mjög sammála fullyrðingunni „krökkum á mínum aldri líkar almennt vel við mig“ ásamt því að meta áhrif frumbreytna sem voru aldur, kynferði, samfélagsmiðlanotkun, neteinelti og neikvæð reynsla á netinu. Helstu niðurstöður voru þær að unglingar upplifa bæði jákvæð og neikvæð áhrif á sjálfsmynd sína í gegnum samfélagsmiðla. Stelpur eru þó mun líklegri til að þróa með sér neikvæða líkams- og sjálfsmynd en strákar þar sem þær eiga það til að gera meiri samanburð við aðra og meta þannig sjálfsmynd sína út frá áliti annarra. Óvænt niðurstaða kom í ljós en því meira sem strákar notuðust við samfélagsmiðla, því betri sjálfsmynd höfðu þeir. Við myndum þó ekki ráðleggja unglingsstrákum að auka samfélagsmiðlanoktun til að bæta eigin sjálfsmynd. Einnig sáust sterk tengsl á milli neteineltis og sjálfsmyndar en þeir sem höfðu lágt sjálfsálit voru líklegri til þess að hafa orðið fyrir neteinelti eða verið gerendur þess. Gerendur neteineltis geta þó líka haft hærra sjálfsálit en aðrir. Ályktun okkar er sú að með hóflegri notkun samfélagsmiðla ætti það ekki endilega að þurfa að hafa neikvæð áhrif á sjálfsmynd barna og unglinga.
Source: Skemman
Authors: Harpa Rún Guðlaugsdóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979783430
