Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð var leitast við að svara hvaða þættir skipta máli og ber að taka tillit til við gerð afreksstefnu fyrir Lyftingasamband Íslands og lyftingafélag. Afreksstefnan ætti snúast um það að hafa sem mesta stjórn á ytri þáttum og búa til sem best umhverfi fyrir íþróttamanninn. \nFjallað var um reglur í ólympískum lyftingum og sögu íþróttarinnar, \nsem og hvernig Ísland stendur á heimsvísu. Einnig var fjallað um hvað \nþað þýðir að vera afreksíþróttamaður og hvaða eiginleikum slíkur \níþróttamaður þarf að vera gæddur og hvernig hægt sé að skapa sem \nbest umhverfi fyrir hann til þess að ná árangri. Fjallað var um mikilvægi markmiðasetningar og mismunandi tegundir markmiða. Búið var til plakat með markmiðastiga. Markmiðastiginn hjálpar íþróttamönnum \nað sjá hvar þeir standa miðað við aðra, átta sig á veikleikum sínum og \nstyrkleikum og hjálpar þeim við markmiðasetningu. Gerð var \nþarfagreining á íþróttinni og útbúin viðmið fyrir styrk á hverju stigi í \nmarkmiðastiganum.
Source: Skemman
Author: Árni Freyr Bjarnason
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979787858
