Work

Áhættuþættir starfstengdrar örmögnunar og vinnuþunglyndis: Tengsl vinnutengdra- og einstaklingsbundinna þátta við geðheilsu á vinnustað

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Hraðar og miklar breytingar hafa orðið á vinnumarkaði síðastliðna áratugi, m.a. vegna tækniþróunar, alþjóðavæðingar og sveiflna í efnahag. Þessum breytingum hefur fylgt aukið álag á starfsmenn og stór hluti fólks upplifir verulega vanlíðan í starfi (Gallup, 2022). Telja má víst að vanlíðan starfsfólks hafi neikvæðar afleiðingar fyrir framleiðni og samkeppnisstöðu fyrirtækja. Geðheilsa starfsfólks er því aðkallandi viðfangsefni á vinnumarkaði í dag. Markmið rannsóknarinnar var að skoða tengsl persónubundinna- og vinnuumhverfisþátta við örmögnun (e. exhaustion) annars vegar og vinnuþunglyndi (e. occupational depression) hins vegar. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegri rannsókn á vinnufíkn og heilsutengdum vandamálum. Þátttakendur (N=309) voru starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði sem svaraði sjálfsmatslistum rafrænt. Ekki var um tilviljunarúrtak að ræða. Í takt við tilgátur sýndu niðurstöður að bæði vinnutengdir þættir og persónubundnir þættir spá fyrir um örmögnun og vinnuþunglyndi. Sterkustu forspárbreyturnar voru vinnukröfur og tilfinningalegur stöðugleiki og gilti það fyrir bæði konur og karla. Konur upplifðu marktækt meiri örmögnun og vinnuþunglyndi en karlar. Við athugun á forspárþáttum kom ekki í ljós mikill kynjamunur en þó virðist lægri aldur spá marktækt fyrir um einkenni örmögnunar og vinnuþunglyndis meðal karla en ekki meðal kvenna. Að auki spá fullkomnunarárátta og samsömun við vinnustað marktækt fyrir um einkenni vinnuþunglyndis meðal kvenna en ekki karla. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna nokkuð háa tíðni örmögnunar innan úrtaksins og gefa góða mynd af áhrifaþáttum starfstengdrar geðheilsu meðal svarenda. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa hagnýtt gildi og gætu komið að góðu gagni við þróun inngripa og forvarnaraðgerða.
Source: Skemman
Authors: Ásgerður Erla Haraldsdóttir, Aðalheiður Lind Björnsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979793645
Cites: 100
Cited by:
Related to: 10