Work

Áhrif samfélagsmiðla á svefn unglinga : kerfisbundin heimildasamantekt

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Rannsóknin er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Samfélagsmiðlanotkun hefur aukist mikið síðastliðin ár og eru unglingar stærsti notendahópurinn. Undanfarin ár hefur einnig svefnlyfjanotkun meðal barna og unglinga aukist. Áhrif svefnleysis eru margþætt og geta haft alvarlegar afleiðingar á þroska unglinga, líkamlega og andlega heilsu og námsárangur þeirra. Það er því vert að skoða hvort samfélagsmiðlanotkun hafi áhrif á svefn unglinga og hver slík áhrif geta verið. \n\tÞað er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar sem starfa með unglingum séu meðvitaðir um afþreyingarefni þeirra og áhrif þess á heilsu. Hjúkrunarfræðingar sinna fræðslu og forvörnum víðs vegar í heilbrigðiskerfinu auk þess sem þeir sinna inngripum og eftirfylgni ef upp kemur heilsubrestur hjá skjólstæðingum. \n\tTilgangur þessarar rannsóknar var að skoða nýjustu rannsóknagreinar um áhrif samfélagsmiðla á svefn unglinga. Gerð var kerfisbundin heimildasamantekt (e. systematic review) þar sem rannsókna var aflað frá tímabilinu 2010-2018 í gagnasöfnunum PubMed, Ebscohost og Web of Science. Við leitina fengust átta rannsóknagreinar sem uppfylltu fyrirfram sett inntökuskilyrði. Rannsóknirnar átta gáfu vísbendingu um að samfélagsmiðlar gætu haft áhrif á svefn unglinga og afleiðingar gætu verið margvíslegar. Höfundar þessarar rannsóknar telja að niðurstöður muni auka þekkingu lesenda um áhrif samfélagsmiðla á svefn og vonast til að hjúkrunarfræðingar nýti sér niðurstöðurnar til að bæta og efla forvarnarstarf til unglinga. \nLykilhugtök: Samfélagsmiðlar, unglingar, svefn, hjúkrunarfræði.
Source: Skemman
Authors: Anna Lilja Sigurðardóttir 1989, Sunna Líf Guðmundsdóttir 1989
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979793854
Cites: 73
Cited by:
Related to: 10